Blogg um markaðsmál - skrifað á mannamáli! Þetta er gamla góða íslenska bloggið og hér eru fjölmargir klassískir póstar sem ég mæli með að þú lesir. Hinsvegar er nýrra blogg þar sem ég birti nýja pósta, bæði á íslensku og ensku, á thoranna.is/blog - tjékkaðu endilega á þvi líka. ;)
Showing posts with label líka við. Show all posts
Showing posts with label líka við. Show all posts
Endurtaka, endurtaka, endurtaka...
Í fyrri pósti hef ég talað um að maður þurfi að finna hvern einasta snertipunkt við brandið og skoða hvernig við getum notað hvern og einn til að byggja það. Við þurfum að tryggja að fólk fái sömu upplifun af okkur hvar sem það kemst í snertingu við okkur. En það er ekki nóg. Þú verður líka að endurtaka, endurtaka, endurtaka, endurtaka og endurtaka enn og aftur...
Það er frábært þegar manni leiðist!
Endurtekning er lykilatriði í markaðsetningu, og ég get lofað þér því að ef þú ert að vinna markaðsstarfið rétt, þá kemur þér til með að leiðast. Þú verður leið(ur) á brand útlitinu; litunum þínum, leturgerðinni, myndunum o.s.frv., þú verður leið(ur) á markaðsefninu; auglýsingunum, skilaboðunum o.s.frv. Þú færð leið á þessu öllu saman. Það er alveg klárt mál! En málið er að þú ert alltaf að vinna með þetta. Þú ert alltaf að horfa á þetta, hugsa um þetta, þú ert alltaf að hrærast í þessu. Það væri hinsvegar fínn árangur ef fólkið sem þú ert að reyna að ná til sæi svona 1% af öllu því sem þú ert að gera. Þú verður að muna að markaðsstarfið snýst ekki um þig. Það snýst um þau. Þér á eftir að leiðast þetta, en þú verður bara að láta þig hafa það og harka af þér!
Ef þú ferð að breyta hlutunum bara af því að þér leiðist; breyta skilaboðunum, breyta útlitinu hvort sem það er á auglýsingum, bæklingum, efni á samfélagsmiðlunum, blogginu eða hverju sem er,
Flokkar:
branding,
Endurtekning,
líka við,
traust,
vitund
Markaðsferlið
Það er mikilvægt að skilja ferlið sem viðskiptavinurinn þarf að fara í gegnum áður en hann er tilbúinn að kaupa af þér. Ef þú skilur það ferli, þá ertu betur í stakk búinn til að nýta markaðsaðgerðirnar þínar og skilaboðin markvisst til að færa hann í gegnum það og að kaupum.
Fyrsta skrefið er einfaldlega að fólk viti að þú ert til - vitund. Það þýðir ekki bara að fólk hafi séð þig einu sinni eða tvisvar, það þarf að hafa virklega tekið eftir þér til að hægt sé að segja að vitund sé til staðar. Það er ansi erfitt að fá einhver til að kaupa af manni sem veit ekki einu sinni að maður er til, ekki satt? ;)
Þó svo að fólk viti að þú ert til, þá er ekki þar með sagt að það hafi áhuga. Og ef fólk hefur ekki áhuga á fyrirtækinu þínu, vörunni eða þjónustunni, þá nær þetta ekki lengra. Þú verður að vekja áhuga þeirra til að fá þau til að vera tilbúin að hlusta og taka til greina það sem þú ert að segja. Það er ekki fyrr
Flokkar:
endurtekin sala,
líka við,
markaðsferli,
prufa,
tilvísun,
traust,
vitund
Ég elska þegar fólk fílar mig ekki!
Ég hitti vinkonu mína og kollega fyrr í vikunni. Hún spurði mig hvaða viðbrögð ég hefði fengið við síðasta bloggpóstinum og tölvupóstinum sem ég sendi þeim sem fylgja mér. Ástæðan fyrir því að hún spurði var að kona nokkur hafði komið að máli við hana og var ekki alls kostar ánægð með mig. Hún vissi ekki alveg hvernig hún átti að taka því að í efnislínu tölvupóstsins sem ég hafði sent henni stóð “Ekki vera rass, … “ og nafn viðtakanda. Það var greinilegt á orðum vinkonu minnar að þetta hafði heldur betur farið fyrir brjóstið á konunni.
Vinkona mín reyndar spurði hana hvort hún hefði síðan lesið póstinn - vitandi að þá hefði hún væntanlega fattað grínið - en frúin hafði ekki gert það. O jæja …
Viðbrögð mín voru eintóm gleði. Mér fannst þetta frábært! OK - nú máttu alls ekki misskilja mig. Það var ekki markmiðið mitt að láta vesalings konunni líða eitthvað illa og mér þykir það miður. Hinsvegar er ég mjög glöð þegar einhver fílar alls ekki það sem ég geri. Af hverju? Af því að ef einhver fílar það engan veginn eru góðar líkur á því að einhver annar fíli það í botn! Og það er það sem maður vill.
Ugla sat á kvisti
Ég hef sagt það oft áður og segi það enn og aftur. Markaðssetning snýst öll um að mynda samband. Því sterkara samband sem þú* getur myndað, því líklegra er fólk til að kaupa af þér, því líklegra er það til að kaupa af þér aftur og því líklegra er það til að segja öðrum frá þér og skapa þér þannig meiri viðskipti. Þú vilt að sumir elski þig og aðrir hati þig - verum raunsæ, það eru aldrei allir að fara að elska þig! Þeir sem elska þig vilja ekki skipta við neinn annan og ef fólk fílar þig ekki þá ertu í það minnsta líkleg(ur) til að vekja umtal ;)
Ef öllum finnst þú* hinsvegar bara ágæt(ur), þá skiptirðu fólk ekki nógu miklu máli til að það velji þig framyfir einhvern annan. Ef þú ert ágæt(ur) og hinn er ágæt(ur) og þessi þarna er ágæt(ur) þá getur fólk alveg eins notað “ugla sat á kvisti” til að velja hvern það verslar við. Eða enn verra, valið eingöngu byggt á verðum - og þá fyrst fer reksturinn að verða erfiður þegar það er það eina sem maður keppir á!
*Athugaðu að þegar ég segi “þú” þá á ég við fyrirtækið þitt, vöru, þjónustu - jú eða þig sjálfa(n) ef þú ert það sem þú ert að markaðssetja.
Vertu bleik!
Þegar ég byrjaði í sjálfstæðum rekstri var ég mikið spurð hvað í ósköpunum ég væri að spá að nota þennan sterka bleika lit í markaðsefninu mínu. “Heldurðu að þetta komi ekki til með að stuða fólk?” var ég spurð, og “heldurðu að karlmenn vilji skipta við þig þegar þú notar þennan lit?”
Sjáðu til, það er mjög mjög mjööööööööög meðvituð ákvörðun að nota þennan bleika lit. Hann er fullkominn til að koma brandinu mínu til skila. Hann er eins og ég, kraftmikill, sterkur, biðst ekki afsökunar á neinu, lifandi og “in your face”. Hann er líka ólíkur litunum hjá öllum hinum sem eru á álíka markaði og ég.
Ef að þessi litur er nóg til að stöðva fólk í því að vilja vinna með mér, þá eru allar líkur á því að það fólk sé hvorteðer ekki rétta fólkið fyrir mig að vinna með. Ef liturinn stuðar einhvern, þá myndi ég væntanlega stuða þann hinn sama :) Og ef að strákarnir vilja ekki vera memm bara af því að ég er bleik - ooo jæja, þá eru það hvorteðer ekki strákar sem ég vil vinna með ;)
Vertu þú!
Það hefur aldrei neinn náð langt á því að vera fyrir alla og þú munt ekki ná langt heldur ef þú reynir það. Vertu það sem þú vilt vera, það sem þú vilt að fyrirtækið þitt, vörur og þjónusta standi fyrir og þá muntu ekki bara ná í gegn um hávaðann og samkeppnina á markaðnum heldur muntu fyrir vikið mynda mun sterkari sambönd við fólk sem fílar þig í botn!
Kíktu hérna á Pinterest töfluna mína sem er helguð fólki, fyrirtækjum, vörum og þjónustu sem hafa afgerandi karakter sem fólk getur þá annað hvort elskað eða hatað - aðilar sem hafa hugrekki og uppskera tryggja fylgjendur í kjölfarið!: http://www.pinterest.com/thoranna/brave-brands/ - ef þú manst eftir fleirum sem eiga heima þarna, endilega láttu mig vita ;)
Brand stefnumótun er hjarta MáM þjálfunarinnar - byggðu upp brand sem fólk elskar!
Því miður, ég get ekki hjálpað þér...
Í nóvember og desember fæ ég oft símtöl eða tölvupósta frá fólki í kvíðakasti, biðjandi mig um aðstoð við að selja vöruna þeirra eða þjónustu fyrir jólin. Svona ca. kerter í jól :) Svo ég ætla núna að skrifa bloggpóst til að fræða þig, og sem ég get hreinlega sent hlekk í næst þegar ég fæ svoleiðis beiðni :)
Svarið er einfalt: “Því miður, ég get ekki hjálpað þér”. Það er ekki til nein töfralausn í markaðssetningu sem virkar á örfáum dögum eða vikum. Ef þú hefur ekki sinnt markaðsstarfinu þínu almennilega hingað til, byggt það upp og lagt inn í bankann, þá þýðir ekki að ætla að rjúka til núna og ætlast til að markaðsstarfið skili árangri á nokkrum vikum fyrir jól. Að ekki sé nú talað um að ætla markaðsstarfinu að ná athygli á þessum árstíma þegar allir eru að garga á alla um að kaupa þetta og kaupa hitt - maður einfaldlega drukknar í hávaðanum.
Það er núna sem þeir uppskera sem sáðu fyrir löngu síðan og rækta stöðugt markaðsgarðinn sinn. Þeir sem hafa byggt upp sambandið við markhópinn sinn. Þeir sem hafa leitt fólk í gegnum markaðsferlið nú þegar, eru búnir að byggja upp vitund, eru búnir að byggja upp áhuga, hafa fengið fólk til að líka við sig. Hafa byggt upp traust og hafa gert fólki kleift að prufa vöruna sína eða þjónustuna á einhvern hátt svo að fólki finnist það vita hvað það er að fara að kaupa. (Ef þú hefur ekki enn séð vídeóið mitt um markaðsferlið, smelltu hér til að kíkja á það ;)
Ég gekk inn í Hagkaup um daginn og við mér blasti standur með Vísindabók Villa. Um leið og ég sá hana þá vissi ég að ég myndi kaupa a.m.k. eitt, ef ekki fleiri eintök, til að gefa í jólagjafir. Hvað bókina varðar, þá rauk ég í gegnum markaðsferlið á innan við mínútu. Ég sá hana og vissi því af henni, hún vakti strax áhuga, mér líkaði við hana og treysti því að hún væri þess virði að kaupa. Ég kíkti á hana, sem kom mér yfir prufuferlið, et voilà, ég var tilbúin að kaupa. Eða hvað….?
Sannleikurinn var sá að ég hef verið að fylgjast með Villa í mörg ár. Börnin mín hafa setið stjörf yfir öllum bíómyndunum hans með Sveppa, og þegar þeir hafa birst saman í sjónvarpinu um helgar í gegnum tíðina. Ég hef hlustað á spurningaþáttinn hans í útvarpinu á sunnudögum og fór með dóttur mína á Karíus og Baktus með Naglbítunum fyrir mörgum árum síðan. Ég hef vitað af Villa í mörg mörg ár, haft áhuga á því sem hann hefur verið að bralla og líkað við hann. Ég hef séð aðra hluti sem hann hefur gert, og treysti honum þess vegna til að gera góða hluti og það var auðvelt að prufa bókina - ég bara blaðaði í sýningareintakinu. Villi hefur lagt inn hjá mér í mjög langan tíma og þess vegna er hann að uppskera núna með sölu á bókinni sinni.
Ef þú ert ekki þegar farinn að rækta markaðsstarfið þitt, þá er of seint í rassinn gripið að ætla að gera það núna til að fá sölu fyrir jólin. Þú getur hinsvegar tekið þá ákvörðun að ætla að taka þetta föstum tökum og tryggja að þú sért ekki í sömu sporum næstu jól. Það er t.d. tilvalið að skella sér núna á MáM þjálfunina í markaðsmálum til að tryggja að næstu jól verði sérstaklega gleðileg! Ef þú tryggir þér áskrift fyrir jól færðu einn mánuð í bónus, auk þess sem þetta er síðasti sjéns til að fá þjálfunina með sérsniðinni skýrslu frá mér með tillögum að markaðsaðgerðum og sem kemur markaðskerfinu þínu af stað (þjálfunin breytist aðeins eftir áramótin ;)
Smelltu hér til að fá að vita meira um MáM þjálfunina!
xo
Flokkar:
áhugi,
Endurtekning,
líka við,
markaðsferli,
prufa,
sala,
vitund
Ekki vera leiðinleg(ur)!
Eitt af því sem maður er alltaf að reyna að segja fólki sem þarf að markaðssetja vöruna sína eða þjónustu, er að vera öðruvísi, vera sérstakur, áhugaverður, skipta fólk máli. Ég er á því að maður eigi alltaf að vinna að því að fá ákveðinn hóp fólks til að elska fyrirtækið þitt, vöruna eða þjónustuna. Og fyrir vikið halda sumir stundum að ég sé barasta rugluð!
En veistu, neibb, ég er það ekki. Mamma sagði alltaf við mig, “ef það er þess virði að gera hlutina, þá er þess virði að gera hlutina vel”. Fyrirtækið þitt, varan eða þjónustan er ekki einhver smá partur af lífinu sem er allt í lagi að láta bara malla. Ef þú ert með eigið fyrirtæki, viltu þá ekki gera hlutina eins vel og mögulegt er? Fá eins mikið og mögulegt er út úr því? Og viltu ekki hafa gaman í vinnunni? Gamanið kemur með því að gera hlutina vel, stefna lengra, og skapa eitthvað spennandi, eitthvað óvenjulegt, eitthvað áhugavert. Geeeeeeeeeeeeeeerðu það, ekki vera leiðinleg(ur)!
Ég setti saman Pinterest töflu með upplýsingum og dæmum um hvernig þau gera þetta. Kíktu á hana - þetta er algjör snilld og ætti að vera þér innblástur til að gera hlutina áhugaverða, alveg sama hvað þú ert að selja! Pinterest.com/thoranna/fantastic-marketing-and-branding-poo-pourri/
Ég vil aldrei aldrei aldrei aftur heyra að einhver sé með vöru eða þjónustu sem er ekki hægt að gera eitthvað áhugavert við!
Hvernig ætlar þú að gera þína vöru eða þjónustu áhugaverða - og eitthvað sem fólk getur elskað?
Í MáM þjálfuninni er mikil áhersla lögð á branding, og inni í þeirri vinnu að finna hvað það er sem er áhugavert við vöruna þína eða þjónustu og hvernig þú getur komið því á framfæri og fengið fólk til að elska það sem þú hefur að bjóða.
Flokkar:
aðgreining,
ástríða,
branding,
hugrekki,
líka við,
vænlegur markhópur
Bladí bladí bla bæt, blah, RAM, bladí bla MHz bla...
Skildirðu þetta ekki alveg? Hvað meinarðu?! En það er fullt af fólki sem heldur að fullt af fólki skilji þetta og skilur ekkert af hverju fullt af fólk er ekki æst í að kaupa af þeim! :)
Það hafa komið að máli við mig nokkrir aðilar sem reka tölvuþjónustur. Þetta eru minni aðilar á markaði, bjóða upp á ýmsa þjónustu í kringum tölvurnar og selja oft líka tölvubúnað. Flestir þessir aðilar eru minnst að selja til tölvusérfræðinga. Helstu viðskiptavinirnir eru einstaklingar og lítil og meðalstór fyrirtæki, þar sem ekki er upplýsingatækni-sérfræðingur innanborðs, eða ef það er einhver sem sér sérstaklega um þau mál þá er það oft aðili sem hefur nokkuð almenna þekkingu og getur haft yfirsýn yfir hlutina, frekar en að vera sérfræðingur á einhverju sviði.
Málið með þessi fyrirtæki er að þau eru eiginlega barasta öll eins - ja, a.m.k. þau sem ég hef skoðað. Það sker sig ekkert þeirra almennilega úr og ekkert þeirra talar á mannamáli um hvað þau geta gert fyrir viðskiptavini sína heldur týna flestir sér í græjutali og fagmáli. Fólki er þessvegna svo sem alveg sama hvar það verslar. Það kaupir þar sem það fær besta verðið - verð er því það helsta sem keppt er á - og ef fólk kaupir vegna þess að þjónustan er góð, þá er það oftar vegna þess að það var heppið og lenti á honum Sigga eða Bjössa eða einhverjum sem er bara náttúrulega þjónustulundaður, ekki af því að fyrirtækið sem slíkt hafi tekið þjónustumálin sín föstum tökum.
Það eru mikil tækifæri á þessum markaði til að skera sig úr. Tala við fólk á mannamáli, en ekki í
bætum og Hz og RAM og hvað þetta heitir allt. Hvaða vanda þarf að leysa? Hvaða þörf þarf að mæta? Og að láta skína í gegn að það eru engar heimskulegar spurningar, bara heimskuleg svör. Efnismarkaðssetning (sem ég hef talað um áður hér í blogginu) er tilvalin fyrir tölvufyrirtæki. Vertu sérfræðingurinn sem veit allt um þessi mál en segir það á mannamáli, veitir fólki þær upplýsingar sem það þarf. Þannig myndu þau byggja upp samband, traust, sérfræðiorðspor og orðspor fyrir þjónustulund.
Já og byggðu upp áhugaverðan brand persónuleika sem fólki líkar við. Þorðu að vera skemmtilegur, litríkur, hjálplegur, þægilegur, glaðlegur. Veldu aðra liti en svartan og grænan með Matrix style myndefni, eða rauðan og gráan með allt of miklu dóti og tilboðsstjörnum um allan vef. Þróaðu aðgreinandi og áhugaverðan tón í því hvernig fyrirtækið talar. Ekki vera alveg eins og allir hinir. OK, ég veit, augljóst dæmi, en af hverju heldur þú að Apple hafi skotið öðrum fyrirtækjum á sínum markaði ref fyrir rass? Ekki með því að tala í bætum, Hz og RAM. iPod: “A 1000 songs in your pocket” - það er það sem skiptir máli! (Það er reyndar svolítið skondið að það að taka Apple sem dæmi er algjör klisja, en samt er bransinn ekki búinn að fatta þetta með hundinn! :)
Ég hef ekki enn unnið fyrir neitt af þeim tölvufyrirtækjum sem hafa komið að máli við mig. Af hverju? Vegna þess að hingað til hafa þau flest viljað koma og fá að vita hvað aðgerðir þau ættu að fara í: “eigum við að kaupa Facebook auglýsingar, Google AdWords, eigum við að auglýsa þarna eða á hinum staðnum...” og ég einfaldlega vinn ekki þannig. Það er bara einfaldlega bull að byrja á þeim endanum. Þú þarft að þekkja markhópinn, samkeppnina, vita hver þú ætlar að vera, hvernig þú ætlar að vera öðruvísi en hinir og hvernig þú vilt að fólk sjái þig, áður en þú getur ákveðið hvaða markaðsaðgerðir eru réttar fyrir þig og til þess að þær virki þegar þú ferð að nota þær. Ef þú þekkir ekki markhópinn hvernig ætlarðu þá að tala til hans á Facebook? Þú endar í tilboðum og læk-deila-kvitt leikjum og álíka vitleysu, því að þú ert ekki að veita fólki neitt annað sem er neins virði því þú veist ekki hvað skiptir þau máli. Ef þú hefur enga sýn á hvernig þú vilt að fólk sjái þig, hvert þú vilt að brandið þitt sé, þá verður efnið þitt sundurleitt, ósamræmt, ómarkvisst og áhrifalaust, því að þú veist ekki hver þú vilt vera og hvernig fólk sér þig, fólk sér engan samræmdan persónuleika og hefur þess vegna enga leið til að líka við þig, hvað þá að mynda við þig samband.
Ég viðurkenni það algjörlega, mig dauðlangar að vinna fyrir tölvufyrirtæki sem er tilbúið að rífa sig út úr kassanum og gera hlutina almennilega. Það væri hrikalega spennandi verkefni. “Come on, íslenska Apple!” ha ha ha … Ég veit að það er hægt að skilja samkeppnisaðilana eftir í rykinu. En það þýðir hugrekki, dugnað, þolinmæði, metnað og að vera a.m.k. pínku oggulítið klikkuð - ég auglýsi hér með eftir svoleiðis tölvufyrirtæki til að vinna með! :)
Flokkar:
aðgreining,
ástríða,
brand,
branding,
content,
efnismarkaðssetning,
hugrekki,
líka við,
markaðssamskipti,
markhópur,
þörf
Markaðsferlið
Fólk þarf að fara í gegnum ákveðið ferli áður en það er tilbúið að kaupa af þér og
þú getur hjálpað því í gegnum það. Horfðu og fáðu að vita meira :)
Flokkar:
áhugi,
endurtekin sala,
líka við,
markaðsferli,
prufa,
sala,
sýnileiki,
tilvísun,
traust,
vitund
Subscribe to:
Posts (Atom)





