Blogg um markaðsmál - skrifað á mannamáli! Þetta er gamla góða íslenska bloggið og hér eru fjölmargir klassískir póstar sem ég mæli með að þú lesir. Hinsvegar er nýrra blogg þar sem ég birti nýja pósta, bæði á íslensku og ensku, á thoranna.is/blog - tjékkaðu endilega á þvi líka. ;)
Showing posts with label markaðssetning. Show all posts
Showing posts with label markaðssetning. Show all posts
Mig langar að kenna heiminum markaðssetningu ;)
Það er alveg að koma að þeim árstíma sem ég verð að fara að sjá eina af uppáhalds auglýsingunum mínum - þú manst eftir henni ;) Kók auglýsingin þar sem þau standa öll á hæðinni og syngja um hvernig þau vilja kenna heiminum að syngja "in perfect harmony" :) Ég elska þessa auglýsingu. Það koma ekki jólin fyrr en ég er búin að sjá hana :)
Ég er söngkona (jahá, þú vissir það ekki, er það? Hver veit, kannski leyfi ég þér einhvern tímann að heyra í mér ha ha ha :) ... en mig langar ekkert að kenna heiminum að syngja. Það er fullt af góðu fólki út um allt að gera það. Mig langar hinsvegar að kenna heiminum markaðsfræðin. Sérstaklega þeim sem reka lítil og meðalstór fyrirtæki þar sem fyrirtækið er ekki bara fyrirtæki heldur stór partur af lífinu og tilverunni. Mig langar að kenna þeim markaðsfræðin sem stofna fyrirtæki af því að þá dreymir stóra drauma. Hverjir sem þessir draumar eru. Fyrir suma snýst þetta um frelsi, um að vera sinn eigin herra, að hjálpa fólki, og fyrir suma fyrst og fremst um peninga - það er svo margt sem liggur að baki. En það er semsagt það sem ég brenn fyrir. Mig langar að hjálpa til við að byggja upp fyrirtæki sem fólk elskar - sem fólk elskar að eiga viðskipti við en ekki síður fyrirtæki sem eigendurnir elska að reka. Syndin er að allt allt of mörg frábær fyrirtæki deyja vegna þess að það skortir þekkingu á markaðsmálunum. Og það viljum við ekki!
Markaðsmálin eru hinsvegar orðinn þokkalegur frumskógur! Ég er markaðsnörd. Ég nördast í markaðsmálunum allan daginn og ég verð m.a.s. stundum ringluð. Eftir að í bættist netið, samfélagsmiðlarnir, snjallsímar o.s.frv. o.s.frv. - eru möguleikarnir endalausir, tækifærin endalaus, og endalausir hlutir sem hægt er að klúðra. Svo ég tók mig til og skrifaði bók! Er það ekki það sem maður gerir þegar mann langar að kenna einhverjum eitthvað? ;)
Ég vona að þessi bók gefi þeim sem ekki eru sérfræðingar í markaðsmálunum góðan grunn sem þeir geta byggt markaðsstarfið á og hjálpi fólki að átta sig á þessu öllu saman. Það virðist bara hafa tekist nokkuð vel - ég hef a.m.k. fengið mjög góðar viðtökur hjá þeim sem hafa fengið að lesa bókina nú þegar og þú getur séð ummæli frá sumum þeirra hér (þar sem þú getur líka náð þér í sýnishorn úr bókinni ;) http://thoranna.is/marketinguntangledfree/
Í bókinni er farið yfir þau fimm atriði sem liggja til grundvallar öflugu markaðsstarfi: markhópana, samkeppnina, brandið, markaðssamskipti (aðgerðirnar) og markaðskerfið. Svo er planið að kafa dýpra í hvert og eitt þessara fimm atriða í bókum sem koma út í framhaldinu og gefa þér þannig allt sem þú þarft til að taka þetta markaðsdót allt saman í nefið! :)
Ég vona að þú grípir þér eintak af sýnishorninu. Um leið og bókin kemur út þá læt ég þig vita og þá gætirðu nælt þér í hana frítt fyrstu dagana eftir að hún kemur út á Amazon. Gríptu sýnishornið, og fylgstu svo vel með tölvupóstinum þínum til að grípa frítt eintak! Ekkert nema gróði! ;)
Já og þeir sem næla sér í sýnishorn eru svo velkomnir í Marketing Untangled Series hópinn á Facebook þar sem við ræðum markaðsmálin. Ég kíki reglulega inn og tek þátt í umræðum og svara spurningum. Endilega komdu og vertu með!
Jæja - eigum við ekki að fara að rokka þessi markaðsmál?!
xo
Þóranna
p.s. hér er hlekkurinn aftur, bara svona til öryggis ;) http://thoranna.is/marketinguntangledfree/
Ekki gerast sek(ur) um vanrækslu!
Ég er búin að vera að markaðsnördast frá því upp úr aldamótum og búin að vinna með fjölmörgum fyrirtækjum af ýmsum stærðum og gerðum. Aftur og aftur og aftur sé ég grundvallarhluti sem fólk og fyrirtæki klikka á í markaðsstarfinu. Málið í markaðsmálunum er ekki að fylgjast endalaust bara með nýjustu brögðunum og brellunum, málið er að hafa grundvallarhlutina á hreinu.
Svo ég tók mig til og gerði lítið vídeónámskeið um 6 vanrækt grundvallaratriði í markaðsstarfinu sem geta margfaldað árangurinn ef tekin föstum tökum. Fáðu að vita meira í þessu litla vídeói og smelltu svo á hlekkinn fyrir neðan til að skrá þig - alveg frítt :)
Uppfært: Hægt að fá aðgang að námskeiðinu í gegnum thoranna.is/fritt
Svo ég tók mig til og gerði lítið vídeónámskeið um 6 vanrækt grundvallaratriði í markaðsstarfinu sem geta margfaldað árangurinn ef tekin föstum tökum. Fáðu að vita meira í þessu litla vídeói og smelltu svo á hlekkinn fyrir neðan til að skrá þig - alveg frítt :)
Uppfært: Hægt að fá aðgang að námskeiðinu í gegnum thoranna.is/fritt
Markaðsmál og auglýsingar eru ekki það sama
Margir halda að markaðssetning = auglýsingar, en það er ekki svo. Horfðu og ég skal útskýra :)
Flokkar:
auglýsingar,
markaðssamskipti,
markaðssetning
Ekki selja!
OK, ég lofa að ég er ekki endanlega gengin af göflunum. Horfðu og þá skal ég útskýra betur ;)
Smelltu hér til að fara á YouTube og horfa.
Vídeóið er á ensku en hér er þýðingin:
Ég hef það á tilfinningunni að vídeóið mitt í dag verði svolítið umdeilt. Það sem mig langar að segja þér er, í grundvallaratriðum: Ekki selja!
Ég er ekki að meina að þú eigir ekki að láta vörur eða þjónustu í skiptum fyrir peninga. Í guðanna bænum, gerðu það. Það er jú grundvöllurinn fyrir því að vera í rekstri. Það sem ég meina er að til að ná í viðskiptin, ekki nota sölumennsku, sölutækni, "að loka sölunni" og allt það. Notaðu markaðssetningu.
Ég ætla ekki að halda því fram að ég sé fyrsta manneskjan sem fær þessa hugmynd. Ég er klárlega fylgjandi Peter Drucker, sem var stjórnunargúrú á síðustu öld, einn af meisturunum og hann orðaði þetta mjög vel. Hann sagði:
"...markmiðið með markaðssetningu er að gera sölumennsku óþarfa. Markmiðið með markaðssetningu er að þekkja og skilja viðskiptavininn svo vel að varan eða þjónustan henti honum og selji sig sjálf. Þegar best lætur leiðir markaðssetning til þess að viðskiptavinurinn er tilbúinn til að kaupa. Allt sem á að þurfa að gera er að sjá til þess að hægt sé að fá vöruna eða þjónustuna."
Það er það sem ég vil segja. Ef markaðsstarfið þitt er gott, þá koma viðskiptavinirnir til þín og þeir eru tilbúnir að kaupa af þér. Þú þarft ekki að fara í sölugírinn. Eina sem þú þarft að gera er að þjónusta þá, svara spurningum þeirra, veita þeim ráð o.s.frv. þetta er mun þægilegri leið til að eiga viðskipt við fólk.
Ég hef fengið þessa spurningu frá mörgum viðskiptavina minna, spurninguna: "Hvernig hefurðu sölufundina þína? Hvernig lokarðu sölunni? Hvernig biðurðu um söluna?" Ég geri það ekki. Ég markaðsset. Fólk kemur til mín og það kemur þegar það er tilbúið, svo það eina sem við þurfum að gera er að setjast niður, spjalla aðeins um það hvers það þarfnast, spjalla um það hvernig ég vinn og svo leggjum við í hann.
Ég fæ oft að heyra að þetta virki í ákveðnum bransa, en ekki öllum. Afsakaðu orðbragðið, en kjaftæði! Það virkar bara víst alls staðar.
Það er best að horfa bara á dæmin sem við höfum í stóru bröndunum á markaði í dag. Fyrirtækjum eins og Google, Ikea, Apple og Coca-Cola, stærsta brand í heimi. Þessi fyrirtæki eru ekki með sölumenn. Þeir kannski kallast sölumenn, en eru í raun bara þjónustufulltrúar. Titillinn og það sem þeir gera passar ekki. Heldurðu að Coca Cola sölumaður sé hringjandi í fólk "þú átt endilega að kaupa þessa vöru" notandi allskonar trix til að loka sölunni - nei, hann einfaldlega svarar símanum og spyr, "Hversu marga kassa af kóki viltu? Hvenær viltu fá þá? OK, það kostar ... "
Markaðssetning snýst öll um að byggja upp samband. Sölumennska er svolítið eins og að labba upp að stelpunni á barnum "Ég vil fá þig, ég vil fá þig núna! Komdu með mér!" Það er ekki að fara að virka, er það. OK, allt í lagi, það er kannski af og til að fara að virka, en oftar en ekki virkar það ekki. Gakktu upp að stelpunni, kynnstu henni og byggðu sambandið smátt og smátt upp og þá verður hún þín.
Og bónusinn við markaðssetningu frekar en sölumennsku
- það er svo miklu þægilegra og ánægjulegra fyrir þig.
Flokkar:
markaðssetning,
sölumennska
Af hverju þarf maður að skoða samkeppnina?
MáM bloggið að þessu sinni fjallar um mikilvægi samkeppnisgreiningar og gefur þér nokkrar sterkar ástæður fyrir því að greina og fylgjast með samkeppnisaðilunum þínum.
Smelltu á myndina eða hlekkinn fyrir neðan til að horfa ;)
Smelltu á myndina eða hlekkinn fyrir neðan til að horfa ;)
Flokkar:
markaðsmál,
markaðssetning,
samkeppni,
samkeppnisgreining
Þú þarft að þekkja og skilja markhópinn
Það er ekki nóg að vita af hvaða kyni og á hvaða aldri markhópurinn þinn er.
Þú þarft að þekkja hann og skilja.
Virkar ekki myndin eða hlekkurinn í henni?
Flokkar:
markaðsmál,
markaðssetning,
markhópagreining,
markhópur
Stundum þarftu að reka viðskiptavini
Öll viðskipti eru ekki góð viðskipti og það er mikilvægt að vera ekki að láta viðskiptavini sem ekki eru réttir fyrir þig taka frá þér tíma og orku. Fáðu að vita meira með því að horfa á þetta stutta vídeó.
Draumaviðskiptavinurinn
Hvernig finnurðu hvaða markhóp er vænlegast að selja til? Í vídeóinu eru nokkrar vísbendingar ;)
Subscribe to:
Posts (Atom)





