Við könnumst öll við það að fá nóg af leti og áti eftir hátíðarnar. Nú skal sko tekið á því, farið í ræktina, bara borðað gras og grænmeti (eða rjómaostur og beikon ef maður skellir sér í LKL :) Kannastu ekki við þetta? Að rjúka af stað í ræktina, taka vel á því í smá tíma og svo smám saman fjarar þetta út? Eða ertu kannski í duglega hópnum sem heldur þetta út jafnt og þétt all árið um kring? Ef svo, þá óska ég þér til hamingju! Taktu nú það hugarfar og notaðu það í markaðsstarfinu!
Markaðsstarfið er nefnilega alveg eins. Mjög oft rýkur fólk til og ætlar nú heldur betur að taka á málunum - rífa upp söluna. Þetta er gjarnan á sömu tímum og ræktin eða skólabyrjunin, þ.e. í lok ágúst og í september, rétt fyrir jólin (jamm - ég veit!) og svo aftur eftir jólin. Þegar fer að vora róast allt og mætti halda að enginn ætli að selja neitt. En veistu, þetta er alveg eins með markaðsstarfið og ræktina…
Ef ég mæti í ræktina einn mánuð á ári og hamast eins og brjálæðingur, mæti 6 sinnum í viku í 3 tíma í einu - kemst ég þá í form? Í rauninni ekki. Það er líklegra að ég geri út af við mig. Ég kemst í áttina og svo dettur þetta allt niður og ég þarf að byrja á sama stað aftur næst. Það er alveg eins með markaðsstarfið. Það þýðir ekkert að rjúka af stað með flugeldasýningu með löngu millibili og gera svo ekkert þess á milli - þá kemst markaðsstarfið aldrei í form.
Kunningi minn kom líka með aðra skemmtilega líkingu hvað þetta varðar. Hann hefur mikið unnið með bændum í gegnum tíðina. Hvernig ætli það væri ef bóndinn færi bara og mjólkaði kýrnar duglega einu sinni í mánuði? Eða gæfi dýrunum bara einu sinni yfir vetrartímann? Hrúgaði bara vel í ílátin og léti svo duga? Hvernig myndi það ganga? - það myndi náttúrulega ekkert ganga. Það er bara svoleiðis að það verður að mjólka á hverjum degi, það verður að gefa á hverjum degi, sama hvað tautar og raular. Sama hvort manni finnst það skemmtilegt eða leiðinlegt. Sama hvort það er mánudagur eða sunnudagur, aðfangadagur eða páskadagur.
Þetta er alveg eins með markaðsstarfið. Það þarf alltaf að vera að. Auðvitað tek ég þér fagnandi ef þú skellir þér í MáM þjálfun hjá mér núna á nýju ári og það er frábært skref í rétta átt. En það gerir hinsvegar ekkert að massa þetta í janúar og hætta svo í febrúar. Og það gerir heldur ekkert að kaupa áskrift og gera svo ekkert við hana - það er svona eins og með styrktaraðila líkamsræktarstöðvanna ;) Málið er bara að mig langar ekkert í neina styrktaraðila. Mig langar að hjálpa þér að byggja upp öflugt markaðsstarf sem skilar þér góðum viðskiptum og góðum rekstri. Það gerist ekki á einni nóttu. En ef þú ert til í að vera memm í ræktinni reglulega, þá verð ég voðalega glöð að sjá þig :)
Blogg um markaðsmál - skrifað á mannamáli! Þetta er gamla góða íslenska bloggið og hér eru fjölmargir klassískir póstar sem ég mæli með að þú lesir. Hinsvegar er nýrra blogg þar sem ég birti nýja pósta, bæði á íslensku og ensku, á thoranna.is/blog - tjékkaðu endilega á þvi líka. ;)
Showing posts with label markaðsdagatal. Show all posts
Showing posts with label markaðsdagatal. Show all posts
Einn bita í einu!
Ég er á bömmer í dag! Það er allt búið að vera á fullu, to-do listinn er mílu langur, ég er að blogga þegar pósturinn með blogginu og fleiru góðgæti fyrir markaðsmálin á að vera á leiðinni í pósthólfið hjá fólkinu mínu og fría vídeónámskeiðið sem ég ætlaði að vera komin með í loftið er ekki klárt!Hvað nú? Jú, þá er málið að minna sig á nokkra hluti. T.d. það sem krakkarnir mínir eru farnir að segja til baka við mig: “Ég dey ekkert þótt að …”, það að himininn hrynur ekkert og að maður borðar bara fíl einn bita í einu!
Þetta er líka það sem viðskiptavinirnir mínir þurfa að hafa í huga þegar ég sendi þeim tillögu að markaðsprógrammi. Það getur verið yfirþyrmandi að sjá lista yfir hluti sem maður þarf að gera, og margt af því hlutir sem maður þekkir ekki út í gegn, og hlutir sem augljóslega gerast ekki á einni nóttu.
Lykillinn er að taka frá ákveðið mikinn tíma reglulega, hvort sem það hentar að taka klukkutíma á dag, einn morgun í viku eða hvað sem hentar, hafa skýran verkefnalista og saxa á hann. Standa við tímasetningarnar - ekki láta aðra hluti stela markaðstímanum þínum - og vinna sig í gegnum þetta jafnt og þétt. Borða fílinn, einn bita í einu!
Stressa sig heldur ekki á því þó að það sé ekki allt fullkomið. Ég er með mílulangan lista. YouTube stöðin mín er t.d. ekki komin í brand útlit. Stóra myndin á Google+ prófílnum mínum er enn of lítil, eftir að Google stækkaði svæðið, bloggið mitt fer of seint út í dag, prógrömmin um lykilorðagreiningu og leitarvélabestun eru ekki enn tilbúin, en þetta kemur allt með kalda vatninu og þá verður þetta bara stöðugt betra og betra og betra.
Kosturinn við að vera með plan, vera með verkefnalistann, vera búinn að taka frá ákveðinn tíma sem er helgaður markaðsmálunum, er að maður þarf þá a.m.k. ekki að hlaupa um eins og hauslaus hæna vitandi ekkert hvað maður á að vera gera og hvernig. Það er þetta með skipulagið. Það er kannski ekki mest sexý hlutinn af lífinu, en boy ó boy, það getur bjargað manni!
Ég er hætt á bömmer - hann tekur líka frá mér orku sem ég get notað til að klára þetta blogg, senda þér það og drífa í að klára fría vídeónámskeiðið mitt. Er það ekki miklu meira vit?
Í MáM þjálfuninni geturðu bæði fengið tillögu að markaðsprógrammi, getur fengið aðstoð við að koma upp verkáætlun fyrir markaðsstarfið þitt og færð þjálfun í að koma upp markaðskerfi sem tryggir að þú getir sinnt markaðsstarfinu jafnt og þétt og samt átt tíma aflögu fyrir allt hitt!
Flokkar:
markaðsdagatal,
skipulag,
tími
Sköpun og skipulag
Í þessum síðasta pósti um efnismarkaðssetningu (e. content
marketing) ætla ég að tala aðeins um praktíska hluti. Stór hausverkur er oft hvernig
við ætlum að gera efni sjálf og hverju öðru við getum deilt, t.d. á
samfélagsmiðlunum, sem krefjast töluverðrar virkni og getur verið áskorun að
halda lifandi.
Ef þú hefur fylgt mér í einhvern tíma, á blogginu,
póstlistanum eða samfélagsmiðlunum, þá sérðu að efnismarkaðssetning er nokkuð
sem ég nota mjög mjög mikið og á margvíslegan hátt.
Efni getur verið á margskonar formi, miðlað með margskonar
leiðum og gegnt margskonar tilgangi í markaðssetningu. Þetta getur verið t.d.
blogg, vídeó, allskonar efni á samfélagsmiðlunum, myndir, infographics, rafbækur og vefnámskeið svo við teljum upp
nokkur af þessum helstu leiðum. Það er ákveðin list – en aðallega færni sem
maður getur tamið sér – að vita hvernig maður getur sett efnið fram og hvar
best er að deila því. Og hitt – sem er ekki nein list, bara hreinræktuð
skipulagning – að vita hvernig maður á að koma hlutunum þannig fyrir að maður
sé sífellt að dæla út efni og sífellt sýnilegur án þess að vera að allan
sólarhringinn.
Ég er ein í markaðsmálunum í mínu fyrirtæki. Ég er reyndar á
fleiri samfélagsmiðlum en ég mæli með því að vera á, en það er einfaldlega vegna þess að ég er
„í bransanum“ og þarf að þekkja helstu miðlana og hafa reynslu af þeim. Ég mæli
með því að þú finnir hvað virkar fyrir þig, haldir þig við það og dreifir þér
ekki of mikið.
Margir eiga ekki orð yfir því hversu virk ég er á samfélagsmiðlunum, í því að búa til, finna og senda frá mér efni. Og fólk gapir þegar ég segi þeim að ég eyði svona einum morgni á mánuði og 10 mínútum á dag í samfélagsmiðlana og svona í heildina kannski tveimur til þremur tímum á viku í bloggið og póstlistann – oft mun minna. Samt er póstlistinn það sem ég legg virkilega áherslu á. Þar fær fólk ekki bara bloggið mitt, heldur líka ýmislegt annað góðgæti – því þú verður jú að fá meira fyrir þinn snúð þegar þú skráir netfangið þitt heldur en bara fyrir eitt lítið like á Facebook ;)
Margir eiga ekki orð yfir því hversu virk ég er á samfélagsmiðlunum, í því að búa til, finna og senda frá mér efni. Og fólk gapir þegar ég segi þeim að ég eyði svona einum morgni á mánuði og 10 mínútum á dag í samfélagsmiðlana og svona í heildina kannski tveimur til þremur tímum á viku í bloggið og póstlistann – oft mun minna. Samt er póstlistinn það sem ég legg virkilega áherslu á. Þar fær fólk ekki bara bloggið mitt, heldur líka ýmislegt annað góðgæti – því þú verður jú að fá meira fyrir þinn snúð þegar þú skráir netfangið þitt heldur en bara fyrir eitt lítið like á Facebook ;)
Viltu vita hver galdurinn er?
Jú, maður þarf réttu tækin og tólin til að búa til efnið og
koma því út án þess að það verði allt of mikil vinna – t.d. með því að pósta á
samfélagsmiðlana fram í tímann, samtengja miðla ef við á o.s.frv. Hootsuite bjargar lífi mínu :) En galdurinn
er fyrst og fremst kerfi – skipulag á því hvernig ég finn um hvað ég ætla að
gera efni, hvernig ég geri efnið og hvernig ég finn efni frá öðrum sem ég get
deilt með fylgjendum mínum. Risa
stór hluti markaðsstarfsins er nefnilega ekki endilega þetta skapandi (eins og einn kennarinn minn sagði einhvern tímann „arty farty“) heldur praktísk og fyrir sumum kannski leiðinleg skipulagning – en vá hvað það auðveldar manni lífið!
Og hver veit, núna þegar þú ert að lesa þennan póst gæti ég verið að sleikja sólina á Spáni! :) - en með hjálp góðrar skipulagningar, markaðskerfis, efnisdagatals og tækninnar the show will go on!
stór hluti markaðsstarfsins er nefnilega ekki endilega þetta skapandi (eins og einn kennarinn minn sagði einhvern tímann „arty farty“) heldur praktísk og fyrir sumum kannski leiðinleg skipulagning – en vá hvað það auðveldar manni lífið!
Og hver veit, núna þegar þú ert að lesa þennan póst gæti ég verið að sleikja sólina á Spáni! :) - en með hjálp góðrar skipulagningar, markaðskerfis, efnisdagatals og tækninnar the show will go on!
Flokkar:
efnisdagatal,
efnismarkaðssetning,
markaðsdagatal
Gleðilegt ár! Nú komum við okkur í gírinn!
Gleðilegt ár! Nú er tilvalið að koma sér í gírinn fyrir árið framundan og skipuleggja markaðsdagatalið!
Flokkar:
markaðsdagatal,
skipulag
Subscribe to:
Posts (Atom)

