Blogg um markaðsmál - skrifað á mannamáli! Þetta er gamla góða íslenska bloggið og hér eru fjölmargir klassískir póstar sem ég mæli með að þú lesir. Hinsvegar er nýrra blogg þar sem ég birti nýja pósta, bæði á íslensku og ensku, á thoranna.is/blog - tjékkaðu endilega á þvi líka. ;)
Brand tengingar
Í fyrri pósti hef ég talað um mikilvægi þess að fólk geti sett okkur í kassa, eða skúffu í skjalaskápnum í höfðinu. Fólk þarf á mjög auðveldan hátt, og á engum tíma, að vita hver við erum til að þau taki eftir okkur og við eigum sjéns á plássi í minninu. Það, eitt og sér, er hinsvegar ekki nóg.
Þeir sem hafa lesið bókina mína, Marketing Untangled, þekkja markaðsferlið. Markaðsferlið segir okkur að áður en fólk kaupir af okkur þá þarf það ekki bara að vita af okkur, heldur þurfum við líka að vekja áhuga þeirra, þeim þarf að líka við okkur og þau þurfa að treysta okkur. Til þess að ná því þurfum við líka að byggja upp ýmsar tengingar í kollinum á þeim, bæði huglægar tengingar og tilfinningalegar. Öðruvísi komum við ekki til með að geta byggt sterkari tengingu við fólk og skapað trygga viðskiptavini.
Spáðu bara í hvað margt kemur upp í hugann og hversu miklar tilfinningar vakna þegar við hugsum um sum af þekktustu bröndunum þarna úti. Hér eru tvö vel þekkt dæmi, og nokkrir af þeim hlutum sem líklegt er að komi upp í hugann þegar við hugsum til þeirra:
Disney er hluti af okkur öllum. Það er einfaldlega ekki hægt að komast hjá því að fá ýmislegt upp í kollinn og finna tilfinningarnar innra með okkur þegar við heyrum eða sjáum orðið "Disney". Og hvort sem við elskum eða hötum Lady Gaga, þá er aldrei hægt að saka hana um að vera óáhugaverða og engin hætta á að það komi ekkert upp í hugann - kjötkjóllinn er t.d. mynd sem erfitt er að má úr huganum!
Það eru svona tengingar sem gera brönd áhugaverð, geta fengið fólk til að líka við þau og treysta þeim nægilega mikið til að vilja kaupa af þeim. (Auðvitað aldrei alla - en þá sem eru í markhópnum). Brand tengingar geta komið úr ýmsum áttum og þegar við förum í gegnum branding vinnuna okkar þá eru til hinar ýmsu æfingar til að hjálpa þér að átta þig á þeim brand tengingum sem þú gætir verið að byggja upp fyrir þitt brand. Hverjar sem þær eru, þá verðurðu að vera meðvituð/-aður um þær og tryggja að þær brand tengingar sem skapast hjá fólki séu þær sem þú vilt að séu til staðar og munu leiða til viðskipta.
Brand tengingar geta komið úr ýmsum áttum. T.d. geta þær komið frá vörunni sjálfri eða þjónustunni: Er varan einföld eða fáguð? Ódýr og hressileg? Lúxus? Er brandið tengt ákveðnum stað? Er það t.d. sérstaklega franskt, amerískt, íslenskt eða frá ákveðnum bæ eða landsvæði? Myndrænir hlutir mynda sterkar brand tengingar. Spáðu t.d. í öllum myndunum sem koma upp í hugan þegar þú hugsar um brönd eins og Disney, Apple eða Coca-Cola. Brönd geta haft ýmis tákn. Ekki bara lógó, heldur líka tákn á borð við fólk (Steve Jobs, Richard Branson), hluti eins og kók flöskuna eða Mikka mús eyru, eða jafnvel byggingar eins og Trump Tower. Brönd geta tengst ákveðnum árstímum og tilefnum. Er þetta fyrir sumarið eða veturinn? Ákveðna hátíðisdaga? Hverskonar fólk tengjum við við brandið sem notendur? Hverjir við teljum að noti það sem frá brandinu kemur getur haft mikil áhrif. Viljum við vera hluti af þeim hópi? Brandið hefur ákveðinn persónuleika. Ef brandið væri persóna, hverskonar manneskja væri það? Hvernig er sambandi fólks við brandið? Er brandið meira svona virðulegur ráðgjafi, eða hress félagi?
Við gætum haldið endalaust áfram. Það er svo margt sem hægt er að skoða og kanna til að finna út hvernig þú vilt byggja brandið þitt upp og það er margt af því mjög skemmtilegt :) Vinsæl æfing er að fara í "ef brandið mitt væri ... " og finna hvað lýsir því best hvernig þú vilt að brandið sé. Það getur verið eins og eitthvað dýr, bílategund, drykkur, bíómynd og hitt og þetta. Allir þessi hlutir hjálpa þeim sem koma að uppbyggingu brandsins að fá sem besta mynd af því hvernig við viljum að aðrir upplifi okkur og tryggir þannig að allir séu á sömu blaðsíðu. Þessar æfingar geta líka hjálpað þér að finna hluti sem eiga við brandið þitt sem þú hefðir kannski annars ekki áttað þig á.
Við þurfum að vera meðvituð um hvaða brand tengingar við byggjum, því þær hafa mjög mikil áhrif á hvort fólk tekur eftir brandinu okkar, hvort því líkar við það, treystir því og á endanum, hvort það kaupir af okkur.
Hvað viltu að fólk hugsi og hvaða tilfinningar viltu að vakni hjá fólki þegar það sér fyrirtækið þitt, vöru eða þjónustu?
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment