Draumaviðskiptavinurinn - finndu besta markhópinn fyrir þig!


Það getur verið að við séum fyllilega búin að gera okkur grein fyrir því hversu mikilvægt er að reyna ekki að markaðssetja til allra. Vandmálið hinsvegar er þá oft, hvernig í ósköpunum eigum við að vita hvað er besta fólkið fyrir okkur að markaðssetja til? Hvernig í ósköpunum átt þú að finna út hvað er besti markhópurinn fyrir fyrirtækið þitt?! - engjar áhyggjur - ég ætla að hjálpa þér að finna út úr því ;)

Stærsta vísbendingin um hver besti markhópurinn þinn er liggur í núverandi viðskiptavinum þínum. Hugsaðu þig vel um. Hverjir eru bestu viðskiptavinirnir þínir í dag? Hvaða viðskiptavinum elskarðu að vinna með og fyrir? Almennt gildir sú regla að 20% viðskiptavinanna þinna eru draumaviðskiptavinri og þessir 20% gefa af sér 80% af tekjunum þínum. Væri þá ekki vit að finna fleiri svoleiðis?

Þú getur ekki selt öllum - finndu markhópinn þinn!



Þegar eigendur minni fyrirtækja eru spurðir um markhópinn sinn, þá eru enn ansi margir sem svara því til að þeir selji barasta öllum. Sem er mjög skiljanlegt. Hver vill ekki að sem allra flestir kaupi vörurnar þeirra eða þjónustu? Ég skil þetta barasta ósköp vel. Stundum langar mann bara að standa úti á torgi og hrópa yfir allan heiminn hvað maður hefur að bjóða. Ég sjálf á það til að taka bara smá kast og hugsa - æi, ég hendi þessu bara þarna út á alla. Vandamálið er bara að það virkar ekki. Af hverju ekki?

Spáðu aðeins í þessu. Það dúndrast á okkur hundruð ef ekki þúsundir markaðsskilaboða á hverjum degi. Það er í viðbót við öll önnur skilaboð eins og símtöl, tölvupósta, fréttirnar og bara svona almenn dagleg samskipti við heiminn og fólkið í kringum þig. Við verðum stöðugt að vera að sía úr og velja hverju við eigum að veita athygli og hvað við eigum að loka úti. Ef einhver er ekki að tala beint til okkar - og helst bara okkar - þá erum við ekkert að fara að hlusta.

Þegar kemur að því að tala við fólk um vörur og þjónustu þá er fólk ekkert að fara að hlusta ef því finnst hlutirnir ekki eiga við sig. Ef fólk hefur ekki áhuga, eða telur sig ekki hafa þörf fyrir vöruna eða þjónustuna (jafnvel þó að við vitum að þau þurfa hana ;)  þá munu þau bara loka augum og eyrum fyrir okkur og velja að nýta þau til að hlusta og horfa á eitthvað annað sem þeim finnst eiga betur við sig. Það er þessvegna mjög mikilvægt bæði að skipta máli fyrir viðkomandi og að vera áhugaverður. Og maður getur einfaldlega ekki skipt alla máli eða verið þannig að allir finnist maður áhugaverður.

Það er líka ferlega dýrt að ætla að reyna að vera alls staðar og tala við alla. Með því ertu að eyða óskaplega miklu af tíma, orku og peningum í að koma áfram skilaboðum sem fólk einfaldlega skellir skollaeyrum við. Sem frumkvöðull eða fyrirtækjaeigandi, hefurðu efni á að eyða tíma, orku og peningum á þann hátt? Ég veit að ég hef það ekki.

Þess vegna verðurðu að velja og fókusera. Þú verður að finna þann hóp, eða þá hópa, fólks sem er tilbúinn til að hlusta á þig og er tilbúinn að kaupa vöruna þína eða þjónustu - markhópana þína. Og þú þarft svo að stúdera þá út í gegn.

Finndu út hvernig best er að ná til þeirra. Hvaða skilaboð eru sterkust og ná í gegn? Hugsaðu bara um þitt daglega líf og hvernig þú þarft að sníða skilaboðin að mismunandi aðilum, þó að þú sért að segja í grunninn sama hlutinn. Ef ég ætla að fá táningsson minn til að koma með mér upp í sumarbústað þá þarf ég að selja það ansi mikið öðruvísi heldur en þessi sem er 6 ára, eða gagnvart vinafólki mínu, ekki satt? Það þarf líklega að tala unglinginn svolítið til, 6 ára guttinn flippar af spenningi um leið og orðið "sumarbústaður" er nefnt og þegar ég býð vinafólki mínu skemmir ekkert fyrir að minnast á nautasteikina sem verður á grillinu eða góða rauðvínið sem verður með henni ;)

Stendurðu nokkuð enn á kassa á Lækjartorgi og reynir að garga yfir allan heiminn? Veistu hver markhópurinn þinn er, eða markhóparnir? Segðu mér frá hér fyrir neðan :)







Tíminn flýgur hratt á gervihnattaöld - hvernig getum við fengið meira af honum?!

Við þekkjum þetta öll - það eru einfaldlega ekki nógu margir tímar í sólarhringnum. Hinsvegar vitum við líka að þetta er ekkert líf. Endalaust stress, alltaf að flýta sér, aldrei að geta verið í núinu og - það sem getur drepið reksturinn okkar - að geta aldrei sinnt því mikilvæga því að við erum á haus að slökkva elda og sinna þessu áríðandi.

Sl. sumar gerði ég tvær kannanir þar sem kom berlega í ljós að stærstu hindranirnar fyrir því að fólk tæki markaðsmálin sín föstum tökum eru tími og peningar. Ég veit að ég get tæklað þetta með peningana - markaðsstarfið þarf nefnilega ekki á svo miklum svoleiðis að halda og ég get kennt fólki hvernig það getur náð árangri í markaðsstarfinu með litla sem enga peninga. Ég get líka hjálpað fólki að setja hlutina þannig upp að markaðsstarfið taki ekki meiri tíma en nauðsynlegt er - en það tekur alltaf einhvern tíma - og til að koma hlutunum þannig að fyrir að það þurfi sem minnstan tíma, þá þarf tíma til að koma því þannig fyrir :) Og ekki má gleyma að tími er jú, réttilega, peningar) - svo ég ákvað að fara á stúfana og reyna að finna út úr því hvernig ég gæti búið til meiri tíma fyrir mig, og vonandi þig í leiðinni ;)

Ég fékk astoðarkonuna mína (það er einmitt einn liður í því að búa til meiri tíma fyrir sig ;)  til að taka saman fyrir mig bestu ráðin sem hún gat fundið til að nýta tímann betur og koma meiru í verk. Svo fór ég í gegnum þau og valdi þau sem mér leist best á. Það er úr mörgu að velja og til að þessi póstur verði ekki of langur þá ætla ég að fara yfir þrjú þeirra hér. Ég mun svo klárlega koma með fleiri þegar fram líða stundir - sérstaklega þegar ég finn hluti sem virka fyrir mig og gætu því mögulega virkað fyrir þig ;)

1 - Ekki láta aðra stjórna!


Byrjum á þessu. Ég nefnilega þegar farin að nota þetta og það svínvirkar.

Þegar þú byrjar að vinna á morgnana, ekki opna tölvupóstinn eða Facebook eða neitt slíkt sem kemur þér í samband við umheiminn. Byrjaðu bara einfaldlega á einhverju þeirra mikilvægu verkefna sem fyrir liggja og krefjast þess að þú getir einbeitt þér að þeim í svolítinn tíma. Ef þú mögulega getur, slökktu líka á símanum og láttu bara talhólfið sjá um málið. Ekki skoða neitt af þessu fyrr en um hádegi. Segjum að þú byrjir að vinna kl. 9 - eða jafnvel 10 - þetta gefur þér ótruflaðan tíma til að vinna, fersk(ur) í morgunsárið í 2-3 og jafnvel 4 tíma ef þú byrjar kl. 8. Ég lærði þetta af Tim Ferriss með 4-hour work week og mér finnst frábært að minna mig á að með þessu þá ræð ég deginum mínum, í stað þess að leyfa öðrum að gera það með því að ég bregðist við þessu emaili, svari þessum Facebook skilaboðum o.s.frv.

Taktu svo smá tíma áður en þú ferð í mat og tjékkaðu á pósti (og Facebook, ef starfið þitt er þess eðlis að þú þurfir að svara fyrirspurnum eða öðru þar - annars - slepptu því!!!). Með því að gera það áður en þú ferð í mat þá ertu heldur ekkert að dúlla þér í því of lengi því garnirnar eru farnar að gaula ;)   Láttu svo póstinn aftur algjörlega vera þar til síðast áður en þú hættir að vinna. Hvort það er korteri, hálftíma eða klukkutíma áður fer eftir því hvað þú færð venjulega mikið af pósti, en pælingin er sú sama og áður. Að fá ótruflaðan tíma til að vinna.

Takk Tim Ferriss :)

2- Hættu þessu endalausa fundastandi!


Það verður að segjast eins og er. Fundir eru tímaþjófar. Það eru yfirleitt fleiri á þeim en þurfa að vera. Þeir eru yfirleitt lengri en þeir eiga að vera og tíminn á fundum er gegnumgangandi illa nýttur í blaður. Hversu oft hefur þú ekki komið út af fundi án þess að það sé nein skýr útkoma og skýr næstu skref?

Gerðu allt sem þú mögulega getur til að komast hjá því að sitja fundi. Ef þú þarft að sitja fundi, farðu þá fram á að fá skýra dagskrá fyrirfram og þar á að koma skýrt fram hvað þarf að koma út úr fundinum. Gerðu allt sem þú getur til að fundarmenn haldi sig við þá dagskrá - ef það felur í sér að taka að sér fundarstjórn, gerðu það! Ef á að taka mörg mál fyrir, biddu um að fá að vera fyrst(ur) með það sem snýr að þér því þú þurfir að fara að sinna öðrum erindum - og farðu svo!

Ég er að verða betri í þessu, en gæti orðið mun betri. Er samt orðin grimm í því að verja tímann minn og bóka fundi bara á ákveðnum dögum og tímum, þar sem ég skelli þeim saman, því að einn fundur hér og einn fundur þar tætir allt í sundur og það verður ekkert úr deginum. Búandi í sveitinni er ég líka hörð á að taka ekki fundi í Reykjavík nema á ákvöenum dögum og þá hrúga ég nokkrum saman og nýti daginn vel í kaupstaðarferðinni. Það þýðir að fólk sem vill hitta mig augliti til auglitis og er ekki tilbúið í sveitaferð þarf stundum að bíða í dágóðan tíma - en hey, þá líka detta út þeir sem þurfa í rauninni ekkert að hitta mig og þeir verða eftir sem vit er í ;)   Ég er auðveldari með Google Hangout fundi (og Skype ef ég neyðist til ;)  en reyni líka eftir bestu getu að raða þeim saman þannig að ég tæti ekki daginn í sundur og vil hafa skýra dagskrá.

Takk aftur, Tim Ferris - og hann lumar á mörgum fleiri góðum ráðum :)

Hann Gunnar Jónatans hjá IBT er assgoti góður bæði í þessu með tölvupóstinn og fundarstjórnina og hann er einmitt með námskeið sem hjálpar þér að temja tölvupóstinn á næstunni, í samstarfi við Dokkuna. Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar.

3 - Sestu aftur á skólabekk


Aha - þetta hljómar eins og tóm vitleysa, ekki satt? Hver hefur tíma til að setjast aftur á skólabekk? Og til að læra hvað? Jú, það er margt sem gott er að læra og sem getur kennt þér að nýta tímann þinn betur. Ég hef áður fjallað um hvað það sparar mikinn tíma að vera með markaðsmálin á hreinu. En það er ekki það sem ég er að tala um núna.

Hraðari lestur. Það er það sem ég er að tala um. Við þurfum öll að lesa alveg ógrynni af hlutum. Við lesum tölvupósta, við þurfum oft að lesa eitthvað vegna vinnunar, og ef við ætlum að verða betri í hlutum (sem við verðum þá oft fljótari í líka) þá þurfum við að lesa meira og hraðar. Ég les mjög mikið, hvort sem það eru bækur tengdar markaðsfræðunum eða mér til skemmtunar, en ég les líka ógrynni af tölvupóstum og bloggum. Og mikið væri nú gott að vera fljótari að því.

Ég er búin að vera á leið á hraðlestrarnámskeið í háa herrans tíð. Ég á satt best að segja voða erfitt með að gera hluti sem krefjast þess að ég sé á ákveðnum stað á ákveðnum tíma og þess vegna hefur ekkert orðið af því. En nú skal þessu breytt. Ég keypti mér um daginn námskeið á útsölu hjá Udemy sem heitir Become a SuperLearner: Learn Speed Reading and Advanced Memory Techniques. Nú ætla ég að fara að drullast til að fara í gegnum það (það kostar $199, en ef þú skellir þér á póstlista hjá Udemy þá láta þeir þig vita af næstu útsölu og þú gætir fengið það mun mun hagstæðara - held að ég hafi borgað $10 eða $20). Pat Flynn á Smartpassiveincome.com bloggaði líka um hraðlestur mjög nýlega og bendir þar á góð frí YouTube vídeó sem hjálpuðu honum að hraða verulega á lestrinum, bæta skilninginn og minnið!


Ég ætla að byrja á þessum þremur atriðum yfir næstu vikurnar (hraðlesturinn gæti tekið smá tíma að mastera;)   og svo ætla ég að fara aftur í gögnin mín og finna næstu þrjú atriði - og deila þeim með þér :)

Hvað af þessu líst þér best á? Hvað ætlar þú að taka og gera núna strax í dag? Segðu mér og láttu mig svo vita hvernig gengur - mig langar að fylgjast með ;)





Frítt vefnámskeið: Hvernig velur þú réttu markaðsaðgerðirnar?

Í staðinn fyrir bloggpóstinn þessa vikuna ákvað ég að skella í eitt lítið frítt vefnámskeið. Það er byggt á efni sem ég fór yfir á Small Business Branding Day sl. laugardag og ég er alltaf að átta mig betur og betur á hvað myndi nýtast mörgum.

Skelltu þér hingað til að skrá þig á vefnámskeiðið!

Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 11. september kl. 8:00-9:00 - á netinu. Þú getur þess vegna verið til fara alveg eins og þér sýnist - aldrei að vita nema ég verði enn á náttfötunum ;)

Ég mun fara yfir þá fjóra þætti sem ráða því hvaða markaðsaðgerðir eru áhrifaríkastar fyrir fyrirtækið þitt, vöru eða þjónustu. Þú færð PDF með markaðsferlinu, því ferli sem fólk þarf að fara í gegnum áður en það er tilbúið að kaupa af þér. ATH! Það verður að öllum líkindum ekki upptaka í boði.

Smelltu hér til að fá að vita allt um fría vefnámskeiðið og skrá þig: https://thoranna.leadpages.net/markadsadgerdir/

Hlakka til að "sjá" þig fimmtudaginn 11.!

p.s. ef þú veist um einhvern sem þú heldur að myndi hafa áhuga, skelltu þér hér inn og notaðu hnappana til að deila þessu með þeim  ;)








Hvernig nýtist markaðssetning fyrir hreyfihamlaða?

Markaðsmál eiga það til að hafa á sér þá ímynd að markaðsfólk læri einfaldlega að troða upp á mann allskonar hlutum sem maður þarf ekki. Það er hinsvegar mikill misskilningur. Markaðsstarf snýst um að mæta þörfum fólks, og svo þarf maður að láta fólk vita að maður getur mætt þörfum þess, leyst vandamál þess o.s.frv. Það gerir ekkert gagn að geta gert gagn en gera það svo ekki vegna þess að enginn veit af því, eða fólk áttar sig ekki á því hvað maður gerir fyrir það ;)

Gott dæmi um hvernig nýta má markaðsfræðin algjörlega til góðs var þegar Sigurbjörg Daníelsdóttir, ráðgjafi hjá Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar, hafði samband við mig í vetur. Þekkingarmiðstöðin er upplýsinga- og fræðslumiðstöð fyrir hreyfihamlaða og aðstandendur þeirra og starfsfólk hennar fann að þrátt fyrir að hafa komið upp glæsilegum upplýsingavef o.fl. þá var það ekki nóg. Þau þurftu að finna leiðir til að láta fólk vita af honum og hvernig mætti nýta þjónustuna þeirra.

Ég ákvað að bjóða þeim frítt í MáM Bootcamp (planið er að bjóða alltaf einu verkefni frítt í Bootcamp framvegis, einhverju sem er "not-for-profit" og samfélagið nýtur góðs af). Í staðinn bað ég Sigurbjörgu að deila með fólki hvernig MáM hefði nýst þeim. 

Við settumst því við tölvurnar, Sigurbjörg í Reykjavík og ég í Njarðvík, og tókum spjall um þessi mál. Þar sem netið var eitthvað að stríða okkur og myndin var ekki góð, ákvað ég að láta hljóðið nægja - bara svona eins og í gamla góða útvarpinu :)

Ég vona að þú hafir gagn og gaman af því að heyra um reynslu þeirra hjá Þekkingarmiðstöðinni af því að vinna markaðsstarfið eftir MáM ferlinu. Ég hvet þig líka eindregið til að kynna þér það frábæra starf sem miðstöðin vinnur. Vefurinn þeirra er thekkingarmidstod.is og óhætt að mæla með honum við hvern þann sem málefni hreyfihamlaðra varðar, hvort sem þú ert hreyfihamlaður einstaklingur, aðstandandi, fyrirtæki eða félag sem vilt betur mæta þörfum þessa hóps eða hvað annað það er.

Smelltu hér til að hlusta á spjallið okkar um reynslu Þekkingarmiðstöðvarinnar af MáM Bootcamp.



Viltu vita meira um MáM þjálfunina/MáM Bootcamp? Smelltu þá hér!