Bara oggulítil jólakveðja frá mér til þín ;)


Gleðileg jól!

Ó, já, til öryggis, ef vídeóið hér fyrir ofan er til einhverra vandræða ;)


Akkuru geriru þetta, akkuru, akkuru, akkuru?




Manstu eftir litlu rassálfunum í Ronju ræningjadóttur sem spurðu í sífellu “akkuru gerirún etta, akkuru, akkuru, akkuru?” Hefurðu einhvern tímann spurt þig af hverju þú gerir það sem þú gerir?

Ég trúi því að það geti verið betri og verðugri ástæður fyrir því að reka fyrirtæki en bara til að græða peninga. Þú getur kallað mig barnalega, en svoleiðis er það. Staðreyndin er líka sú, að þau fyrirtæki sem standa fyrir eitthvað annað og meira en bara að græða peninga, ja … þau græða oftast líka meiri peninga!

Í bókinni Passion Brands: Why Some Brands Are Just Gotta Have, Drive All Night For, and Tell All Your Friends About fjallar Kate Newlin um hvað það er sem gerir það að verkum að sum fyrirtæki eru hreinlega elskuð. Og elskuð fyrirtæki eignast trygga viðskiptavini, sem ekki bara fara ekki annað að versla, heldur bera út boðskapinn og skapa þannig meiri viðskipti. Það kemur skýrt fram í bókinni að fyrirtæki sem standa fyrir eitthvað, hafa einhver gildi, og deila þeim gildum og sýn á lífið með viðskiptavinum sínum, þau uppskera meiri tryggð og betri viðskipti.

Það þýðir hinsvegar ekki að finna bara eitthvað og nota það í markaðsskyni. Ef þú t.d. ákveður að segja heiminum að umhverfisvernd skipti fyrirtækið þitt máli, þá þýðir ekki bara að segja það og setja eina flokkunartunnu á bak við skúr. Þú verður þá að taka það inn í fyrirtækið og taka það alla leið. Hvítþvottur dugir ekki. Þess vegna er betra að finna hvað það er sem skiptir þig og þitt fólk virkilega máli og skiptir líka markhópinn ykkar máli.

Ég á nokkur uppáhaldsfyrirtæki sem byggja á sterkum gildum. Mörg gera þetta rosalega vel. Ekkert endilega fullkomlega, enda er það erfitt, en mjög vel.

Patagonia er t.d. í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er útivistarfyrirtæki, mjög líkt því sem við þekkjum með 66 Norður og Cintamani. Fyrirtækið byrjaði út frá ástríðu stofnandans, ástríðu fyrir fjallaklifri og útivist, og stendur fyrir það enn þann dag í dag. Umhverfisvernd er eðlilegur fylgifiskur þess að vera náttúruunnandi, og er stór hluti af Patagoniu brandinu. Það eru ekki mörg fyrirtæki sem auglýsa að fólk eigi ekki að kaupa vöruna þeirra, líkt og þeir gerðu t.d. með “Don’t buy this jacket” auglýsingunni, sem hvatti til umhverfismeðvitundar og minni neysluhyggju. Þetta er þeirra "mission statement": "Build the best product, cause no unnecessary harm, use business to inspire and implement solutions to the environmental crisis."

Þú getur séð Patagoniu Pinterest töfluna mína hér.

Ben & Jerry's er annað dæmi um brand sem hefur mjög sterk gildi og sýn á lífið. Brandið er byggt upp úr hippalífi stofnendanna og hefur enn í dag sterk gildi frá því þar sem samfélagsleg ábyrgð og umhverfisvitund spila stóra rullu. Þeirra mission statement segir m.a.: "Social Mission: To operate the Company in a way that actively recognizes the central role that business plays in society by initiating innovative ways to improve the quality of life locally, nationally and internationally."

Þú getur séð Ben & Jerry’s Pinterest töfluna mína hér.

Coke fékk mikla jákvæða umfjöllun nýlega þegar þeir ákváðu að setja auglýsingar á pásu og láta allt það fé sem þeir venjulega hefðu látið fara í auglýsingar renna heldur til fórnarlamba náttúruhamfaranna á Filippseyjum. Þetta er náttúrulega frábært, og þeir fengu heldur betur umfjöllun um þetta sem hefur sennilega ekki verið minni en áhrifin sem auglýsingarnar hefðu haft. Maður getur samt ekki annað en sett spurningamerki við þetta útspil þeirra, þar sem þeir taka þetta ekki alla leið. Þeir hafa hingað til ekki gert þetta að stefnu og af mörgu sem þeir gera þá virðist ljóst að það er gróði frekar nokkuð annað sem ræður förinni. T.d. benti góður vinur minn á að þeir neita að nota áhrif sín sem einn aðalstyrkaraðili Ólympíuleikanna í Moskvu til góðs til að hafa áhrif á mannréttindabaráttu í Rússlandi - ó já, og sá hinn sami sá tvöfalda auglýsingu frá þeim í bíó eftir að þeir höfðu gefið út að þeir ætluðu ekkert að auglýsa. - það er vandlifað í þessum heimi :)

Ég er um þessar mundir að vinna með tveimur mjög spennandi sprotafyrirtækjum sem byggja á mjög sterkum gildum.

Fafu framleiðir vörur sem styðja félagslegan, tilfinningalegan og heilaþroska barna í gegnum opinn leik. Þau Hulda og Tom sem standa að baki fyrirtækinu hafa ástríðu fyrir því að bæta veröld barna og það sést í öllu sem þau gera. Áherslan á tengslamyndun, þroskandi leik og virðing fyrir börnum er algjörlega til grundvallar sem gerir það að forréttindum að fá að vinna með þeim í markaðsstarfinu, þar sem ég veit að ég er ekki að þessu bara til að selja vörur, heldur til að bæta líf þeirra barna og fjölskyldna sem við náum til.

RóRó mun koma með á markað á næsta ári dúkku sem hjálpar fyrirburum og ungabörnum að jafna andardrátt og hjartslátt og þar með sofa betur og veita nærveru þegar foreldrar geta ekki verið hjá þeim, s.s. í hitakössum á vökudeildum. Að baki þessari vöru liggur ástríða fyrir því að veita börnum bestu byrjun í lífinu sem möguleg er og hjálpa okkur foreldrum að veita barninu okkar það besta, jafnvel þegar við getum ekki verið hjá þeim af einhverjum ástæðum.

Meira að segja ég, markaðsmanneskjan, sem fólk heldur nú oft að séu algjörir skrattar, ég er ekki í þessu út af peningunum (trúðu mér, ef það væri málið, þá væri ég róandi að því öllum árum að fá eitthvað hot shot djobb í markaðsdeild í stóru fyrirtæki :)   … það sem ég geri sameinar ástríðu mína fyrir því að markaðsnördast og það að geta hjálpað fólki að gera það sem það dreymir um - því fólk fer jú sjaldnast út í eigin rekstur nema vegna þess að það virkilega langi til þess. Staðreyndin er sú að flest lítil fyrirtæki lifa ekki af, og í langflestum tilfellum er það vegna þess að það vantar upp á í markaðsstarfinu. Og það er það sem ég vil bæta svo að þessi fyrirtæki nái að lifa og fólk geti gert það sem það dreymir um.

Hvað skiptir þig máli? Af hverju gerir þú það sem þú gerir? Segðu fólki frá því. Það skiptir máli!



Það sem Herjólfur og aðrir geta lært af leikskóla sonar míns



Bæði börnin mín hafa verið í frábærum leikskóla hér í Innri Njarðvík sem heitir Akur og er Hjallastefnuleikskóli. Frumburðurinn er nú kominn í skóla, en guttinn er enn á Akri og alsæll. Og við foreldrarnir erum líka alsæl. Þegar dóttir okkar byrjaði þarna, þá þriggja ára, þá var skólinn glænýr. Ég meina, hún var bókstaflega í fyrsta hópnum sem var þarna. Við fundum aldrei nokkurn tímann fyrir því að það væri ekki allt á hreinu, og það er fyndið núna að heyra starfsfólkið, sem maður hefur fengið tækifæri til að kynnast vel, tala um kaosið sem þau upplifðu á bak við tjöldin í byrjun - en við foreldrarnir vissum aldrei af!

Margir sem ekki þekkja Hjallastefnuna hafa á henni hinar ýmsu skoðanir. Ég ætla ekki að fara út í þau mál hér nema til að nota nokkur atriði til að sýna fram á hvað fyrirtæki geta lært af Hjallastefnunni þegar kemur að upplifun viðskiptavina. Eitt af því sem þeir, sem ekki þekkja til, gagnrýna er að allt sé mjög formfast. Það er allt merkt, plássinn barnanna þar sem þau sitja í samveru, plássinn frammi á gangi þar sem þau bíða ef verið er t.d. að fara út og allir hlutir, hvort sem það eru hlutir eða húsgögn eru litamerktir sínum kjarna (kjarnarnir heita eftir litunum, s.s. Rauður, Blár, Gulur o.s.frv.) og í skúffum, skápum og hillum er merkt hvað á að fara hvar. Það sem margir taka sérstaklega eftir er að á göngunum eru örvar sem segja til um hvar skuli ganga - þarna er hreinlega hægri umferð, líkt og á götunum.

Þetta hefur aldrei stuðað mig neitt, og eftir að ég sótti foreldrafund þar sem Margrét Pála Ólafsdóttir, upphafsmanneskja Hjallastefnunnar, útskýrði ástæðurnar að baki þessu, þá finnst mér þetta frábært. Þegar lítið barn kemur á nýjan stað, líkt og leikskóla, þar sem er fullt af öðrum börnum, fullt af kennurum og mikið líf og fjör, þá er auðvelt að finnast heimurinn afskaplega stór og mikil hætta á að óöryggi grípi litla einstaklinga. Með því að þau fái sitt merkta pláss í leikskólaveröldinni finna þau að þau eiga sitt pláss í þessum heimi og verða ekki eins hrædd um að verða útundan. Með því að merkja hvar hlutir eiga að vera þá bæði tryggjum við að þeir týnist síður, en kennum þeim líka hvar þeir eiga að vera og kennum þeim góða umgengni. Almennt séð hjálpa allir þessir hlutir til við að einfalda aðeins veröldina fyrir litla gorma sem eru að taka sín fyrstu skref í stórum heimi þar sem sem auðvelt er að verða óöruggur og hræddur.

Og hvað kemur þetta fyrirtækjum við? Jú, nú skal ég segja þér aðra sögu.

Eins og margir sem fylgja mér á blogginu eða samfélagsmiðlunum urðu varir við, þá varð ég veðurteppt í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Það er svosem ekki í frásögur færandi. Hinsvegar, þá varð mér mikið hugsað til leikskóla sonar míns á ferðum mínum með Herjólfi því að þau hjá Herjólfi gætu nefnilega lært mikið af honum.

Beðið eftir Herjólfi í Þorlákshöfn til að komast til Eyja
Í allri minni upplifun af þessum ferðum fann ég að ég var ekki “innanbúðar” - ég var ekki partur af þessum heimi. Það var greinilega ýmislegt sem Eyjamenn og aðrir sem alltaf eru að ferðast með Herjólfi vissu, en fyrir “óinnvígða” eins og mig, þá varð ég bara að reka mig á hlutina. Þetta voru hlutir eins og bara hreinlega hvernig maður fer um borð. Tröppurnar úr afgreiðslunni sem fara upp í landganginn eru ekki merktar, a.m.k. úti í Eyjum, svo maður gæti alveg eins haldið að þær lægju upp á skrifstofugang. Engar örvar og hægri umferð þar.

Mjög þakklát fyrir að hafa verið bent á að bóka koju! :)
Annað var þetta með kojurnar. Mér var sem betur fer bent á, af velviljuðum Eyjamanni, að bóka mér koju - sérstaklega þar sem mátti búast við að vont væri í sjóinn. Flott mál. Ég bóka koju og ég er afskaplega þakklát fyrir þær ráðleggingar. Þegar inn er komið eru engar skýrar merkingar um hvernig maður á svo að bera sig að. Ég fer í kaffiteríuna og spyr, og kemur þá í ljós að í öðrum enda kaffiteríunnar á maður að gefa sig fram, afhenda kojumiðann og fá úthlutaða koju. Þetta kom hvergi fram við bókun né var þetta merkt neinstaðar svo maður gæti séð inni í skipinu.Ég hefði geta vafrað þarna um heillengi og aldrei vitað neitt - og aldrei komist í koju. Á leikskólanum er sko á hreinu hvar allt er og hvað það er. Engin kojuleit þar!

Þetta eru svona litlir og einfaldir hlutir. Ekkert stórmál en eitthvað sem Herjólfsmenn ættu klárlega að huga að þar sem að upplifun viðskiptavina skiptir máli. (En það er kannski svona þegar hlutirnir eru ríkiseinokunarbatterí - þá er kannski lítill hvati, eða hvað? ;)

Hinsvegar tók algjörlega steininn úr á leiðinni aftur í land. Það var sólarhringsseinkun, sem er jú ekkert mál og bara skiljanlegt. Ég átti bókað kl. 8 á miðvikudegi en það var ekki siglt fyrr en kl. 8 á fimmtudegi. Á miðvikudagsmorgninum leit hinsvegar fyrst um sinn út fyrir að yrði siglt, svo að okkur var tjáð að siglt yrði kl. 9, við skyldum bara fara inn í skip og koma okkur fyrir. Kl. 9 er tilkynnt að farið verði kl. 10 og svo kl. 10 er tilkynnt að ekki verið farið í bili, allir beðnir um að yfirgefa skipið og reynt yrði aftur kl. 13 - sem svo varð 14 og svo ferðinni aflýst. Seinnipartinn hafði ég farið í afgreiðsluna og spurt sérstaklega hvort ég þyrfti að gera einhverjar ráðstafanir þegar um svona seinkanir og frestanir væri að ræða og var sagt að ég ætti bara bókað og þyrfti ekkert að spá í því meir.

Vélin sem beið mín á Reykjavíkurflugvelli til að fara til Hafnar
Ég mæti á fimmtudagsmorgninum, klár í Herjólf, og þar sem það hafði orði sólarhringsseinkun þá þurfti ég að keyra beina leið frá Þorlákshöfn út á Reykjavíkurflugvöll til að ná flugi til Hafnar í Hornafirði þar sem næsta námskeið hjá mér var. Þá er mér tjáð að bíllinn minn kæmist ekki með í land! “Ha? En ég spurði sérstaklega í gær hvort að ég þyrfti að gera sérstakar ráðstafanir”. Ég var að tala við vegg. Ég fékk að ræða við rekstrarstjórann sem tjáði mér að það væri ekkert hægt að gera. Þeir gengu fyrir sem áttu bókað kl. 8 á fimmtudagsmorgninum. Ég hefði þurft að setja mig á biðlista daginn áður. Hmmmm … það væri nú áhugavert ef þeir gengju fyrir í flug sem ættu bókað í dag þrátt fyrir að það hefði verið ófært allan gærdaginn. Mjög sérstakt fyrirkomulag, svo ekki sé meira sagt.

Þegar ég sagði stjóranum að ég hefði sérstaklega spurt daginn áður hvort ég þyrfti að gera einhverjar ráðstafanir og verið sagt að svo væri ekki, þá fór hann að tala um að þetta væri nú reynt starfsfólk og vissi nú alveg hvernig þetta væri, gefandi í skyn að þetta gæti nú ekki verið. Ég spurði hann einfaldlega hvort að hann teldi að ég væri að ljúga því að mér hefði verið sagt þetta, og hann dró þá í land með það. Þá hinsvegar sagði hann mér að þetta kæmi skýrt fram á miðanum mínum. Hmmmmm … það myndi vera miðinn sem ég afhenti á miðvikudagsmorgninum þegar allir voru sendir í skip áður en siglingu var seinkað og svo aflýst. Það er jú voðalega erfitt að skoða hann þegar maður er ekki með hann. Merkilegt nokk, þá fékk ég bæði tölvupóst og sms um seinkanirnar og svo þegar var aflýst, en þessar - ja, frekar svona mikilvægu - upplýsingar komu ekki fram þar.

Þetta þýddi að ég þurfti að skilja bílinn eftir í Eyjum, sigla sjálf á Þorlákshöfn og draga manninn minn úr vinnu til að sækja mig þangað og keyra mig út á Reykjavíkurflugvöll. Bíllinn kom svo með næsta bát - sem kom að landi í Landeyjarhöfn! Frá Suðurnesjunum er það svona tæpur vinnudagur í tímum að keyra fram og til baka, takk fyrir. Þetta sem betur fer bjargaðist fyrir horn þar sem góðviljaðir aðilar nýttu tengslanetið sitt og fundu mann sem var að koma með þeim bát og var tilbúinn að keyra bílinn í höfuðborgina - en það er ekkert sjálfgefið og við einfaldlega duttum í lukkupottinn þar.

Það er því óhætt að segja að mín upplifun af því að ferðast með Herjólfi hafi ekki verið góð - og þá á ég ekki við seinkanir og velting - við því er ekkert að gera og vel skiljanlegt - heldur einfaldlega upplýsingagjöf og þjónustu. Í leikskólanum vita börnin - og foreldrarnir - nákvæmlega hvernig hlutirnir fara fram og hvernig á að bera sig að, nýjir sem reyndir.

Mér varð nú líka hugsað til erlendra ferðamanna sem kjósa þennan samgöngumáta - hamingjan hjálpi þeim. Það er merkilegt að þeir komist nokkurn tímann til Eyja!

Hefði Hjallastefnan séð um upplifun viðskiptavina Herjólfs efast ég ekki um að það væri algjörlega á hreinu hvert ég ætti að fara og hvað ég ætti að gera til að komast um borð. Ég hefði fengið skýrar leiðbeiningar, og merkingar, um hvernig ég ætti að bera mig að í kojumálunum og þegar ferðinni var aflýst hefði ég fengið skýrar upplýsingar um hvernig hlutirnir gengju fyrir sig (og þar sem ég þekki leikskólann ekki af öðru en sanngirni þá hugsa ég að eðlileg forgangsröð hefði verið á hlutum eins og bílabókunum). Og ég hefði fengið tölvupóst (Herjólfsfólk er jú með netfangið mitt), eftir að ég kom heim, með könnun um hvernig ferðin hefði verið og hvernig bæta mætti þjónustuna!

Og áður en einhver sendir á mig “já, en þetta stendur nú þarna, þú hefðir átt að sjá þetta eða vita hitt” - þá er það bara svo einfalt að þú átt aldrei að gera ráð fyrir að viðskiptavinurinn sjái eitthvað eða viti eitthvað. Þú átt einfaldlega að tryggja að það sem hann verður að sjá og vita fari alls ekki fram hjá honum. Þú átt að fá aðra sem ekki þekkja til að til að prófa allt þjónustuferlið, allt kaupferlið - allt sem því viðkemur. Og þú átt að hlusta á þá. Að þessu leyti hefur viðskiptavinurinn einfaldlega alltaf rétt fyrir sér!

Hefurðu prófað þetta fyrir þitt fyrirtæki?