Blogg um markaðsmál - skrifað á mannamáli! Þetta er gamla góða íslenska bloggið og hér eru fjölmargir klassískir póstar sem ég mæli með að þú lesir. Hinsvegar er nýrra blogg þar sem ég birti nýja pósta, bæði á íslensku og ensku, á thoranna.is/blog - tjékkaðu endilega á þvi líka. ;)
Komdu þér að efninu! ;)
Markaðsstarf er að breytast. Það hefur breyst gríðarlega mikið á síðustu 10-20 árum. Með tilkomu internetsins, samfélagsmiðla, snjallsíma o.fl. snýst markaðsstarf sífellt minna um einhliða útsendingar á kynningar efni og meira um að draga fólk til sín.
Markaðsstarf snýst minna um að grípa fólk en meira um að vera til staðar og vera á réttum stað þegar fólk leitar eftir einhverju sem tengist því sem þú hefur að bjóða.
Markaðsstarf snýst minna um að ýta hlutum upp á fólk og meira um að laða fólk að sér.
Á ensku er gjarnan talað um að við séum að færast frá outbound marketing yfir í inbound marketing.
Hluti af því að laða að sér fólk er að búa til efni og miðla því til fólks - líkt og ég er að gera með þessum bloggpósti og líkt og ég hef gert með vídeóunum mínum, því sem ég deili á samfélagsmiðlunum o.s.frv. Efninu er ætlað að draga fólk að og byggja upp samband við það - því eins og ég hef svo oft talað um áður, þá snýst markaðssetning um að byggja upp samband - samband sem leiðir m.a. til viðskipta fyrir þig.
Þetta má kalla efnismarkaðssetningu, eða á ensku content marketing.
Flokkar:
blogg,
efnismarkaðssetning,
markaðsferli,
samfélagsmiðlarnir
Varstu búin(n) að spá í þessu varðandi vefsíðuna þína?
Vefsíðan er mikilvæg í markaðsstarfinu - varstu búin(n) að spá almennilega í hana?
Lítið leynivopn ;)
Ég veit um lítið leynivopn sem er einfalt og kostar ekki neitt,
en getur gert eitt og annað fyrir mann.
Viltu vita hvað það er?
Ertu á kortinu hjá Google? - Google Places
Það er frítt að skrá sig á Google Places og vera þar með á lista hjá Google og vera á Google Maps.
Fáðu að vita meira í þessu vídeói :)
ATH að ýmislegt hefur breyst síðan þetta vídeó var gert - skoðaðu Google My Business ;)
Ertu á kortinu hjá Google?
Vertu skráður á Google Places - það er frítt og hjálpar til. Fáðu að vita meira :)
Athugaðu að ýmislegt hefur breyst síðan þetta vídeó var gert. Skoðaðu Google My Business ;)
Subscribe to:
Posts (Atom)