Íslendingar og LinkedIn

Ég mæli yfirleitt með því að viðskiptavinir mínir séu á LinkedIn. Ég fæ oft spurninguna “af hverju?” og athugasemdir um að fólk fatti það ekki, “eru Íslendingar svo mikið að nota það?” o.s.frv.

Það eru margar margar góðar ástæður fyrir því að nota LinkedIn, en byrjum bara á tveimur mögulegum, sem eiga sérstaklega vel við Íslendinga. Geymum hópana, spurningar-og-svör, atvinnuleit og allt þetta sem krefst verulegrar virkni í bili :)



Tengslanetið...

Tengslanetið er eitt mikilvægasta markaðstólið okkar. Hverjir við þekkjum, hverja þeir sem við þekkjum þekkja … Það er hinsvegar erfitt, í raunveruleikanum, að vita hverjir þeir sem við þekkjum þekkja. Því virkara sem fólk er á LinkedIn, því auðveldara er að komast að því hvernig þú tengist þessari manneskju sem þú ert búinn að vera að reyna að komast í samband við í marga mánuði. “Hey, hún er besta vinkona hans Sigga frænda! Best ég tali við Sigga.”  - þú einfaldlega veist þetta ekki almennt, en þegar þetta er komið á LinkedIn (eða Facebook eða …) þá geturðu einfaldlega slegið upp nafninu og séð hvernig þið tengist. Það er miklu áhrifaríkara að hringja í hana ef Siggi frændi er t.d. búinn að senda tölvupósta á undan þér og kynna þig ;)

Þú...

Það er ekki á mörgum stöðum, ef nokkurs staðar, sem þér gefst jafn gott tækifæri til að sýna nákvæmlega hvað þú ert æðisleg(ur). Ef þú myndir setja jafn mikil smáatriði í “um mig” hlutann á vefsíðunni þinni og þú getur komist upp með að setja á LinkedIn, þá fyndist fólki þú barasta skrýtinn - eða sjálfumglaður! Þarna geturðu sagt frá verðlaununum sem þú fékkst, skráð niður hæfnina þína í smáatriðum, sýnt slædurnar þínar frá kynningunni sem þú rokkaðir feitt á um daginn, linkað í rafrænu bókina sem þú gafst út á Amazon (sem enginn veit af ennþá, en boy, ó, boy, þeir vita af henni núna!) o.s.frv. Þetta er gullið tækifæri til að sýna fólki að þú sért sérfræðingur á þínu sviði og bara flottust! Linkaðu svo í LinkedIn prófílinn þinn allstaðar frá sem þér dettur í hug - af vefsíðunni, blogginu, Facebook, hafðu hann á nafnspjaldinu o.s.frv. o.s.frv. og hvettu fólki til að tengjast þér.

Prófaðu - þú hefur engu að tapa ;)

Já - og tengstu mér endilega á LinkedIn :) http://is.linkedin.com/in/thorannakristin


www.thoranna.is

No comments:

Post a Comment