Klukkutími. 60 mínútur. 3600 sekúndur. Það er einn tími í
ræktinni. Það er þáttur í sjónvarpinu (með fullt af auglýsingum). Það er einn
tími í nuddi – og manni finnst það engan veginn nóg. Það er ekki svo mikið sem
maður getur gert á klukkutíma. Selur þú tímann þinn? Hvort sem það er ráðgjöf, einkaþjálfun,
nudd, kennsla eða hvað annað. Gengur það upp? Kaupir þú tíma af einhverjum?
Hversu mikið færðu út úr þeim tíma?
Það hefur löngum tíðkast að fólk selji tímann sinn. Þegar
maður fær borgaða yfirvinnu fær maður í raun borgað á tímann. Þú færð x mikið
fyrir hefðbundinn vinnutíma og y á tímann fram yfir það. Og ef þú ert í fastri
vinnu, þá gengur það upp. Ef þú ert ekki í fastri vinnu þá þarftu að selja út
ansi marga tíma og þú verður að selja þá nokkuð dýrt – og samt hafa tíma til að
markaðssetja þig, tíma fyrir bókhaldið o.s.frv. Ef þú tekur frí, ef þú veikist,
þá færðu ekki greitt. Það róast yfir sumarið, það róast í kringum jólin... ef
þú selur tímann þinn þá þekkirðu þetta...
Hvernig getur þú tekið tímann þinn og gert meira úr honum? Hvernig
getur þú pakkað inn því sem þú gerir og selt það meira eins og vöru, heldur en
sem tíma. Hvernig geturðu selt þó að þú farir í frí, eða fáir flensu? Geturðu kennt fólki eitthvað tengt því sem þú
gerir, komið því frá þér t.d. í bók, námskeiði á netinu, námskeiði á DVD eða
jafnvel sem hljóðbók? Geturðu selt aðra hluti í kringum það sem þú gerir?
Garðyrkjumaður gæti gefið út DVD námskeið um umhirðu garða, nuddari gæti gefið
út bók um leiðir til að mýkja vöðvana og slaka á, gigtarlæknir getur gefið út
bók með ráðleggingum fyrir gigtarsjúklinga, einkaþjálfari getur selt
þjálfunarvídeó á netinu. Það eru ýmsar leiðir til að pakka inn því sem þú gerir
og selja það – hvernig getur þú pakkað þinni þjónustu eða þekkingu inn og selt
hana?
Með þessum hætti geturðu líka hjálpað mun fleiri. Það eru í raun engin takmörk fyrir því hversu margir geta keypt bók, DVD eða farið á vefsíðu. Þó
fólk sé annars staðar á landinu, eða jafnvel erlendis, þó það komist ekki á
hefðbundnum vinnutíma eða hafi jafnvel ekki efni á að kaupa tíma hjá þér þá
geta þessir aðilar oft keypt innpökkuðu þjónustuna. Þú getur selt fleirum á
auðveldari hátt og þannig veitt hagkvæmari kjör, fleiri hafa efni á henni og allt
þetta stuðlar líka að því að bera boðskapinn þinn víðar.
Þegar ég byrjaði þá vann ég "einn-á-einn" með fólki. Ég gat ekki tekið við öllum sem höfðu áhuga á
að vinna með mér, og það voru líka margir sem vildu vinna með mér sem ekki
höfðu efni á því. Ég stillti verðum í hóf, en við þekkjum öll íslenskt
skattaumhverfi – það fer ansi mikið í skatta og gjöld, þannig að ef það á að
hafa eitthvað upp á sig að selja út tímann, þá þarf bara að rukka svolítinn
slatta. Fundum fylgdu líka ferðir, og tími sem fer í þær með tilheyrandi
veseni. Ég fann líka mjög fljótt þegar ég fór að þjálfa fólk í markaðsmálum að ég
var alltaf að fara yfir sömu hlutina aftur og aftur og aftur, svo að smátt og
smátt fór ég að gera efni um markaðsmálin fyrir viðskiptavinina mína.
Viðskiptavinir mínir fóru með efnið heim, fóru í gegnum það og svo fórum við
yfir hlutina þegar við hittumst. Þannig nýttist tíminn með viðskiptavininum mun
betur og var mun meira gefandi fyrir báða aðila því að við vorum ekki að eyða dýrum tíma í
grundvallaratriði. Á endanum snéri ég þessu alveg við – þetta er í raun sama
þróun og er að verða í menntakerfinu – flippuð kennsla – þ.e. með MáM efninu
fer ég með viðskiptavinum mínum yfir grundvallaratriðin og þessi atriði sem
hægt er að setja staðlað fram, þannig að þegar og ef þeir taka tíma með mér, þá
er virkilega eitthvert virði í þeim tíma. Þá erum við farin að tala um hluti
sem virkilega breyta einhverju fyrir viðkomandi.
Ég fæ oft fyrirspurnir um hvort það sé ekki hægt að kaupa
bara einn eða tvo tíma hjá mér. Svarið er einfalt, „Nei, því miður, ég er hætt því“. Af hverju?
Jú, ástæðan er einföld. Ég er búin að átta mig á að ég get voðalega lítið ráðlagt þér af viti í
markaðsmálunum ef ég veit ekki almennilega hver markhópurinn þinn er, hvernig
samkeppnin er og hvernig þú vilt koma fyrir á markaðnum (brandið þitt) – það
eru grundvallaratriðin. Ef þú ert með þetta á hreinu, þá tekur samt a.m.k.
hálfa klukkustundina að koma því til skila til mín – og það er ef þú ert með
þetta allt á tandurhreinu - og mín reynsla er einfaldlega sú að þetta sé í raun það sem
aðallega vantar upp á hjá fólki. Ég hef sagt það áður, og segi það aftur, það skiptir
engu máli hversu vel maður kann tæknilega á Facebook, Google AdWords eða aðrar
markaðsaðgerðir, ef grunnurinn er ekki almennilegur þá gerir þetta ósköp lítið
fyrir mann. OK, þá er hálftími eftir af tímanum. Það er mjög ólíklegt að ég geti ráðlagt
þér eitthvað, og farið nógu vel yfir það, á hálftíma, til að þér finnist þú fá
almennilegt virði út úr tímanum og þá verður þú óánægð(ur) og ég verð svekkt
yfir að geta ekki hjálpað þér almennilega ... oh well :)
Anyhooooo... það sem ég vildi segja með þessu öllu er að ég
tók það sem ég gerði og pakkaði því inn. Þannig get ég selt þjónustu mína þó að
ég sé ekki alltaf á staðnum, viðskiptavinurinn fær mun mun meira fyrir sinn
snúð, og allir eru ánægðari.
Hvernig getur þú pakkað þinni þjónustu inn þannig að bæði þú
og viðskiptavinurinn fáið meira fyrir ykkar snúð? Mér þætti gaman að heyra frá
þér :)
No comments:
Post a Comment