Ekki gerast sek(ur) um vanrækslu!

Ég er búin að vera að markaðsnördast frá því upp úr aldamótum og búin að vinna með fjölmörgum fyrirtækjum af ýmsum stærðum og gerðum. Aftur og aftur og aftur sé ég grundvallarhluti sem fólk og fyrirtæki klikka á í markaðsstarfinu. Málið í markaðsmálunum er ekki að fylgjast endalaust bara með nýjustu brögðunum og brellunum, málið er að hafa grundvallarhlutina á hreinu.

Svo ég tók mig til og gerði lítið vídeónámskeið um 6 vanrækt grundvallaratriði í markaðsstarfinu sem geta margfaldað árangurinn ef tekin föstum tökum. Fáðu að vita meira í þessu litla vídeói og smelltu svo á hlekkinn fyrir neðan til að skrá þig - alveg frítt :)






Uppfært: Hægt að fá aðgang að námskeiðinu í gegnum thoranna.is/fritt

Einn bita í einu!

Ég er á bömmer í dag! Það er allt búið að vera á fullu, to-do listinn er mílu langur, ég er að blogga þegar pósturinn með blogginu og fleiru góðgæti fyrir markaðsmálin á að vera á leiðinni í pósthólfið hjá fólkinu mínu og fría vídeónámskeiðið sem ég ætlaði að vera komin með í loftið er ekki klárt!

Hvað nú? Jú, þá er málið að minna sig á nokkra hluti. T.d. það sem krakkarnir mínir eru farnir að segja til baka við mig: “Ég dey ekkert þótt að …”, það að himininn hrynur ekkert og að maður borðar bara fíl einn bita í einu!

Þetta er líka það sem viðskiptavinirnir mínir þurfa að hafa í huga þegar ég sendi þeim tillögu að markaðsprógrammi. Það getur verið yfirþyrmandi að sjá lista yfir hluti sem maður þarf að gera, og margt af því hlutir sem maður þekkir ekki út í gegn, og hlutir sem augljóslega gerast ekki á einni nóttu.

Lykillinn er að taka frá ákveðið mikinn tíma reglulega, hvort sem það hentar að taka klukkutíma á dag, einn morgun í viku eða hvað sem hentar, hafa skýran verkefnalista og saxa á hann. Standa við tímasetningarnar - ekki láta aðra hluti stela markaðstímanum þínum - og vinna sig í gegnum þetta jafnt og þétt. Borða fílinn, einn bita í einu!

Stressa sig heldur ekki á því þó að það sé ekki allt fullkomið. Ég er með mílulangan lista. YouTube stöðin mín er t.d. ekki komin í brand útlit. Stóra myndin á Google+ prófílnum mínum er enn of lítil, eftir að Google stækkaði svæðið, bloggið mitt fer of seint út í dag, prógrömmin um lykilorðagreiningu og leitarvélabestun eru ekki enn tilbúin, en þetta kemur allt með kalda vatninu og þá verður þetta bara stöðugt betra og betra og betra.

Kosturinn við að vera með plan, vera með verkefnalistann, vera búinn að taka frá ákveðinn tíma sem er helgaður markaðsmálunum, er að maður þarf þá a.m.k. ekki að hlaupa um eins og hauslaus hæna vitandi ekkert hvað maður á að vera gera og hvernig. Það er þetta með skipulagið. Það er kannski ekki mest sexý hlutinn af lífinu, en boy ó boy, það getur bjargað manni!

Ég er hætt á bömmer - hann tekur líka frá mér orku sem ég get notað til að klára þetta blogg, senda þér það og drífa í að klára fría vídeónámskeiðið mitt. Er það ekki miklu meira vit?


Í MáM þjálfuninni geturðu bæði fengið tillögu að markaðsprógrammi, getur fengið aðstoð við að koma upp verkáætlun fyrir markaðsstarfið þitt og færð þjálfun í að koma upp markaðskerfi sem tryggir að þú getir sinnt markaðsstarfinu jafnt og þétt og samt átt tíma aflögu fyrir allt hitt!



7 ofurhetjulexíur í branding



Ég á lítinn gutta. Hann er gaur, eins og guttar á hans aldri eru og fílar allar mögulegar og ómögulegar ofurhetjur. Stundum verð ég smeyk um að hann verði eins og karakter úr Big Bang Theory - sem ég get lifað með ef hann verður eins og Leonard en ég veit ekki alveg með hina ha ha … OK, svo ég veit meira um ofurhetjur en annars væri eðlilegt að kona á fertugsaldri viti - þó að ég viti alls ekki mikið. Og um daginn áttaði ég mig á einu: Ofurhetjur eru snillingar í branding - ja, ok, þær fá hjálp frá markaðssnillingunum á bak við þær, en samt - snillingar! Hér eru 7 hlutir sem ofurhetjur eru alveg með á hreinu í branding!

1. Brand kjarninn - hólfið

Það fer ekkert á milli mála hvað ofurhetja er. Við erum fljót að átta okkur á að viðkomandi er ofurhetja og hvernig ofurhetja þetta er og hvað er hennar "thing".

Superman er góðhjörtuð all-American hetja í Kansas.
Batman er myrkur, flókinn og alvarlegur billjóner.
Spiderman er snaggaralegur stráklingur sem sveiflar sér á kóngulóarvef.
Hulk er grænn, reiður risi.
… o.s.frv.

2. Ríkir brand eiginleikar 

Brand kjarninn er á hreinu en það er ekki allt. Við höfum mjög ríka mynd í huganum af því hverjar þessar ofurhetjur eru og þær vekja mismunandi tilfinningar hjá okkur.

Hér eru nokkrir hlutir sem er líklegt að flestum detti í hug þegar við hugsum um nokkrar þekktar ofurhetjur.





3. Tákn 

Ofurhetjusögur eru ríkar af táknum og það finnst varla sú ofurhetja sem ekki hefur eitthvað táknrænt.
Þór er með hamarinn, Superman með merkið og skikkjuna, Batman með leðurblökuna, Hulk með græna litinn, Spiderman með kóngulóna og svona mætti lengi telja. Við þurfum ekki nema að sjá þessum táknum bregða fyrir og þá vitum við hver er á ferð!

4. Sterk aðgreining hver frá öðrum - afgerandi og sterkur karakter

Það er ekki hægt að saka ofurhetjur um að vera "me-too", þ.e. að vera allar eins eða að líkjast hverri annarri. Þær hafa allar mjög sterka sérstöðu og mjög skýra aðgreiningu, þó að færa megi rök fyrir því að þær þjóni allar sama tilgangi fyrir lesendur/áhorfendur og þá sem þeir bjarga. M.a.s. ofurhetjur frá risunum tveimur DC Comics og Marvel sem eiga heilmikið sameiginlegt eru alls ekki eins. Við getum tekið sem dæmi Ironman og Batman sem eru frá sitthvoru fyrirtækinu. Báðir eru billjónamæringar, hvorugur þeirra er með ofurmannlega krafta eða náðargáfur (nema ef vera skyldi yfirnáttúrulegan sjarma ha ha ha) heldur treysta þeir á tækni og brögð og brellur, báðir eru dularfullir, bitrir, og bindast ekki rómantískum böndum auðveldlega (þó að þeir geri það náttúrulega alltaf aðeins, annars væru sögurnar ekki jafn góðar ;)    

5. Ríkt myndrænt útlit

Myndheimur ofurhetjanna er ríkur og þær hafa allar sitt "look" og sinn myndræna heim. Superman er "Americana" í Kansas, Batman er "urban", dimmur og "cool", Ironman er "high tech" og "futuristic".

6. Samræmi

Eitt lykilatriðið í branding er samræmi. Að vera alltaf eins og auðþekkjanlegur. Þú vilt að fólk þekki það sem frá þér kemur um leið og það sér það, án þess að sjá nokkurs staðar nafn eða lógó. Nýjustu myndirnar um Batman og Superman eru frábært dæmi um þetta. Þegar trailerarnir komu í bíó þá þurfti ekki nema nokkrar sekúndur til að maður áttaði sig á því hvað væri þar á ferð - án þess að hafa nokkurn tímann séð nafnið eða þessi sterku tákn. Frábært branding!

7. Allstaðar og aftur og aftur og aftur

Ofurhetjurnar eru alls staðar og við sjáum sömu myndirnar af þeim aftur og aftur og aftur og aftur. Það er einmitt lykilatriði í því að greipa brandið í huga fólks - með endurtekningu, endurtekningu, endurtekningu, endurtekningu, endurtekningu, endurtekningu, endurtekningu, endurtekningu og meiri endurtekningu.

Ert þú ofurhetja þegar kemur að branding? - þú getur orðið það með MáM þjálfuninni ;)

Er eitthvað fleira sem þér dettur í hug sem við getum lært af ofurhetjunum þegar kemur að markaðssetningu?